Hjörvar O Jensson formaður öldungarnefndar GKG kom færandi hendi hingað á skrifstofu GKG og gaf klúbbnum kr. 210.000,- sem er afrakstur öldunastarfsins í sumar. Við hjá GKG þökkum öldungum GKG fyrir rausnarskapinn og fer peningurinn beint í barna- og unglingastarf klúbbsins.

Mikil gróska hefur verið í öldungarstarfinu undanfarin ár, halda þeir fjölmorg mót á ári hverju jafnt sumar sem vetur en öldungarnir hafa verið duglegir að tileinka sér golfhermana.