Kæru félagar,
Viljum benda á opnunartíma okkar um hátíðarnar.
Opnunartími golfherma er:
- Virkir dagar frá 09:00 til 23:00
- Helgar frá 09:00 til 18:00
- 23. desember frá 9 – 15
- Lokað 24.-26. desember
- Á gamlársdag verður Áramót í golfhermunum, opið frá 9 – 14
- Lokað 1. og 2. janúar
Skrifstofan er lokuð til 7. janúar
Hægt er að bóka tíma í golfherma og skoða leiðbeiningar með því að smella hér, jafnframt er hægt að hringja í 570 7373.
Á opnunartíma er hægt að koma og æfa sig í inniaðstöðu Íþróttamiðstöðvarinnar og Kórsins. Þann 7. janúar hefjast aftur barna- og unglingaæfingar sem takmarka notkun aðstöðunnar frá kl. 15-19 mán-fim og 14-17 á fös.
Viðburðarnefndin lætur ekki deigan síga og er þegar hafa verið nokkrir vel heppnaðir viðburðir. Fyrir neðan má sjá sýnishorn af þeim liðum sem eru framundan í vetur og hvetjum við félagsmenn til að taka eftirfarandi tíma frá:
- 31/12/2018 Mánudagur Áramót, 9 holu golfhermamót (auglýsing kemur fljótlega)
- 20/01/2019 Sunnudagur Sunnudagsmót í golfhermunum
- 01/02/2019 Föstudagur Þorrablót GKG til styrktar afrekssviði GKG
- 23/02/2018 Föstudagur Kótilettu-herrakvöld GKG
Við óskum ykkur gleðilegrar jólahátíðar og þökkum fyrir allar góðu samverustundirnar á árinu sem er að líða.
Áfram GKG!