Nú styttist í að Punktamótaröð GKG hefjist. Næsta mánudag byrjar fjörið og hvetjum við alla félagsmenn GKG að láta þessa mótaröð ekki framhjá sér fara. 

Hér eru upplýsingar um mótaröðina:

Fyrirkomulag Punktamóts GKG 2017

Árið 2017 verður spilað á mánudögum og stendur mótið yfir stóran hluta sumarsins.

Skráning verður með breyttum hætti og fer fram með því að senda tölvupóst til gkg@gkg.is eða með því að hringja í rástímaskráningu GKG í s. 565 7373 og verða rástímar teknir frá á mánudögum. Stefnt er að því að bjóða jafnframt upp á skráningu á Facebook og verður það þá kynnt sérstaklega. Reynt verður að mæta óskum hvers og eins með rástíma hvenær sem er dagsins og verða endanlegir rástímar sendir keppendum með tölvupósti fyrir hvern mótsdag. Opnað verður fyrir skráningu viku fyrir hvern mótsdag og hafa þátttakendur forgang að rástímum fram að almennri opnun rástímaskráningar á golf.is.

Hver leikmaður getur leikið allt að 7 hringi en aðeins 3 bestu hringirnir telja.

Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í lokahófi þar sem fráfarandi punktameistari eða formaður krýnir nýjan punktameistara.
Verðlaunaskrá 2017 er:

  1. 20.000 kr. vöruúttekt frá N1, 10 skipta klippikort í golfherma GKG
  2. 20.000 kr. Vöruúttekt frá N1, 5 skipta klippikort í golfherma GKG
  3. 20.000 kr. inneign í Golfbúðinni

Mótsgjald er 1.500 kr. fyrir hvert skipti og fá keppendur teiggjöf í hvert skipti upp á 1.000 kr. úttekt hjá Mulligan, veitingaraðila GKG. Að teknu tilliti til teiggjafarinnar er mótsgjaldið því aðeins 500 kr. í hvert skipti. Mótsgjaldið er greitt í Proshop þar sem leikmenn fá sérmerkt skorkort fyrir hvern hring.

Fyrsta umferð punktamóts GKG 2017 fer fram mánudaginn 12. júní og verður keppt alla mánudaga frá 12. júní og út júlí, nema 3. júlí vegna meistaramótsins, samtals 7 mánudaga í sumar. Síðasti keppnisdagur verður 31. júlí og lýkur honum með lokahófi og verðlaunaafhendingu.

Mótsstjóri árið 2017 er Eggert Ólafsson.