Þá er komið að hinni bráðskemmtilegu mánudagsmótaröð okkar GKG-inga eða Punktamóti GKG. Mótið er tilvalið fyrir þá sem vilja spila fastan dag í viku. Við getum skráð okkur í mótið með viku fyrirvara og mótsgjaldið er eingöngu kr. 1.500 þar af er inneign hjá vertinum upp á kr. 1.000,-.

Árið 2016 verður spilað á mánudögum og stendur mótið yfir stóran hluta sumarsins. Skráning verður á golf.is og verður boðið upp á rástíma síðdegis hvern dag. Til að skrá sig á mótaröðina fer kylfingur inn á www.golf.is, skárir sig inn og smellir á „Mótaskrá“ (hlekkur við hliðinni á mynd). Þá kemur listi upp með mótum sumarsins og velur hann næsta punktamót og skráir sig í holl. Opnað verður fyrir skráningu 6 dögum fyrir hvern mótsdag eða á þriðjudagsmorgni kl. 08:00.

Hver leikmaður getur leikið allt að 7 hringi en aðeins 3 bestu hringirnir telja.

Vegleg verðlaun verða veitt fyrir efstu þrjú sætin í lokahófi þar sem fráfarandi punktameistari eða formaður krýnir nýjan punktameistara.

  1. Ameríkuferð með Icelandair
  2. 10 þús króan inneign frá N1 og glaðningur frá ölgerðinni
  3. Tveir miðar á Borgarleikhúsið og glaðningur frá ölgerðinni

Mótsgjald er 1.500 kr. fyrir hvert skipti og fá keppendur teiggjöf í hvert skipti upp á 1.000 kr. úttekt hjá Trausta vert sem býður upp á máltíð að leik loknum. Að teknu tilliti til teiggjafarinnar er mótsgjaldið því aðeins 500 kr. í hvert skipti. Mótsgjaldið er greitt í Proshop þar sem leikmenn fá sérmerkt skorkort fyrir hvern hring.

Fyrsta umferð punktamóts GKG 2016 fer fram mánudaginn 27. júní og verður keppt alla mánudaga fram í ágúst, nema 4. júlí vegna meistaramótsins, samtals 7 mánudaga í sumar. Síðasti keppnisdagur verður 8. ágúst og lýkur honum með lokahófi og verðlaunaafhendingu.

Hér er hlekkur inn á mótsreglurnar:  https://gkg.is/motahald/punktamot-gkg/punktamot-gkg-reglur/

Mótsstjóri árið 2016 er Eggert Ólafsson.