Nú fer púttmótaröðin barna og unglinga í GKG af stað, en fyrsta mótið verður haldið á laugardag. Hægt er að pútta milli 11-13 og er þátttaka ókeypis.

Sjá allar nánari upplýsingar hér fyrir neðan.

Púttmótaröðin stendur í fjóra mánuði, fyrsta mótið 12. janúar og seinasta 4. maí.

Alls verða 9 mót. Fimm bestu hringir telja.

Þrír aldursflokkar, kynjaskipt:

12 ára og yngri (fædd ´01 og síðar)

13-15 ára (fædd 00-98)

16-18 ára (fædd 97-95)

Eftir seinasta mótið í vor verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki, stúlkna og drengja. Einnig verða veitt verðlaun fyrir bestu mætingu í mótin.

Þátttaka er ókeypis.

 

Mótsdagar eru eftirfarandi (með fyrirvara um breytingar):

Mótin fara fram annan hvern laugardag milli 11-13.

12. janúar

26. janúar

09. febrúar

23. febrúar

09. mars

23. mars

6. apríl

20. apríl

4. maí

 

Umsjón:

Umsjón með mótunum hefur Hlynur Haraldsson, unglingaleiðtogi GKG.

Skorkort eru inni í skáp í Kórnum. Eftir hvert mót er skorkortum skilað til íþróttastjóra sem færir inn úrslit og birtir á heimasíðu GKG.

Helstu reglur í púttmótum:

Mótin er 18 holur í hvert skipti.

Allir sem taka þátt í mótinu verða að hafa meðspilara sem skráir skor leikmanns.

Leikmaður og ritari þurfa að kvitta fyrir skráðu skori áður en skilað er inn til umsjónarmanns.

Tveir til þrír mega leika saman. Foreldrar mega leika með börnum sínum og skrá þá skorið fyrir barnið.

Skorkortið verður að vera fyllt út með nafni og fæðingarári.

Í byrjun hverrar brautar verður að stilla bolta upp við hliðina á teigmerki.

Klára verður hverja holu til að fá skor.

Eitt högg er í víti ef bolti snertir vegg.

Færa má bolta frá vegg þar til viðunandi staða er fengin, en þó ekki nær holu.

Með bestu kveðjum,

Úlfar Jónsson

Íþróttastjóri GKG

PGA golfkennari

www.gkg.is

ulfar@gkg.is“>ulfar@gkg.is

+354 862 9204