Minnum á púttmótaröð GKG á sunnudaginn til styrktar afreksstarfi GKG.

Þá er mót nr. 2 af 10 en alls gilda 4 bestu mótin í heildarkeppninni.

Mótið er opið öllum kylfingum.

Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverju móti:

1. Boltakort á æfingasvæði GKG að verðmæti kr. 5.000

2. Boltakort á æfingasvæði GKG að verðmæti kr. 3.000

3. Bíómiðar fyrir tvo í Laugarásbíó

Hægt er að pútta milli 12-15 og kostar kr. 500 að taka þátt. Leyfilegt er að pútta tvo hringi og gildir betra skorið í keppninni.

Vonumst til að sjá sem flesta taka þátt.