
Ragnar Már Garðarsson lék lokahringinn á Junior Orange Bowl mótinu á 75 höggum. Ragnar byrjaði á 10. holu og var kominn 4 yfir eftir 5 holur, en fékk síðan þrjá fugla í röð á 16.-18. holu. Holur 1-9 lék hann síðan á þremur yfir. Ragnar hafnaði í 51. sæti á samtals 25 höggum yfir pari. Englendingurinn Patrick Kelly sigraði með miklum yfirburðum, en hann var á samtals 19 höggum undir pari, 13 höggum á undan næsta manni.
Að sögn móður Ragnheiðar, móður Ragnars, lék hann ágætis golf seinasta hringinn en var í vandræðum á flötunum. Ljóst er að þátttaka Ragnars í þessu sterka móti fer í reynslubanka hans, en Ragnar stimplaði sig inn sem einn af okkar efnilegustu kylfingum, með sigrinum á Duke of York mótinu.