Á morgun miðvikudagskvöld frá kl. 20-22 fer fram reglufræðsla undir stjórn Kjartans Bjarnasonar, yfirdómara GKG. Reglufræðslan er hluti af nýliðanámskeiði GKG, en félagsmönnum er velkomið að sitja fundinn og skerpa á kunnáttu sinni í golfreglunum. Reglufræðslan fer fram í golfskála GKG.