Miðvikudaginn 6. júní kl. 18:00 verður Kjartan Bjarnason, landsdómari og dómari GKG, með reglunámskeið í golfskálanum. Þar fer hann yfir helstu lög og reglur sem allir eiga að fara eftir þegar golf er spilað, útskýrir flókin atriði og fleira. Allir sem vilja skerpa á þekkingu sinni eru boðnir velkomnir. Aðgangur er ókeypis.