Öldunganefnd GKG kynnir eftirfarandi reglur um val á karlasveit GKG í Sveitakeppni eldri kylfinga 2012, og er það svohljóðandi:
Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 55 ára og eldri á árinu 2012. Sveitakeppnin fer fram í Stykkishólmi 17. – 19. ágúst.
Það er hægt að taka þátt í 8 mótum og ræður röð kylfinga fjölda stiga sem þeir fá fyrir hvert mót. Leikið er af gulum teigum. Meðalskor í meistaramóti GKG gildir tvöfalt. Miðvikudagsmót vegna vals sveitar GKG fer þannig fram að menn skrá sig í rástíma og skila síðan undirrituðu skorkorti í afgreiðslu og GÁ sér um að reikna stig. Ekkert þátttökugjald er í þessi mót.
Gefin eru stig eins og notuð eru við val á landsliðum LEK, höggleikur án forgjafar. 1. sæti fær 330 stig, 2. sæti fær 265 stig, 3. fær 230 stig, 4. fær 210, 5. fær 190, 6. fær 175, 7. fær 155, 8. fær 140, 9. fær 125, 10. fær 115, 11. fær 110, og 12. fær 100.
1. 12.maí Opnunarmót GKG á Leirdalsvelli (háð veðri)
2. 20.maí LEK mót á Hólmsvelli í Leiru
3. 2.júní Opna Pingmótið á Hvaleyrarvelli
4. 13.júní Miðvikudagsmót vegna vals sveitar GKG
5. 27.júní Miðvikudagsmót vegna vals sveitar GKG
6. 1.júlí Meistaramót GKG, meðalskor
7. 1.júlí Meistaramót GKG, meðalskor
8. 18.júlí Miðvikudagsmót vegna vals sveitar GKG
9. 8.ágúst Miðvikudagsmót vegna vals sveitar GKG
Af 9 hringjum telja 5 sem flest stig gefa hjá hverjum kylfingi.
Þeir 6 kylfingar sem flest stig fá verða í sveitinni og auk þess hefur liðsstjórinn Kjartan Guðjónsson frjálst val um tvo.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Árnason, S: 697-9467, netfang gunnsol@hive.is