Opnað hefur verið fyrir skráningar á vetraræfingar GKG. Við tökum í notkun skráningarkerfi sem kallast Nóri, en mörg íþróttafélög nota þetta kerfi við skráningar iðkenda sinna.
Vetraræfingarnar hefjast 11. nóvember í Kórnum og er nauðsynlegt að hafa lokið skráningu í seinasta lagi miðvikudaginn 6. nóv.
Æfingatöflu, skráningarformið og aðrar nauðsynlegar upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella hér.
Vinsamlegast takið fram í athugasemdadálknum ef einhverjar séróskir eru. Afreks- og keppnishópar eru valdir af þjálfurum. Hægt er að fá ýmsar hagnýtar upplýsingar um barna/unglinga/afreksstarf GKG með því að smella hér.
Vinsamlegast hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.
Með bestu kveðjum,
f.h. hönd Íþróttanefndar og þjálfara.
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
PGA golfkennari
+354 862 9204