Kæru félagar,
Það hefur verið kalt í lofti í upphafi sumars en breytir því þó ekki að einhverjar framfarir eiga sér stað og vellirnir grænka.
Vallarstjóri hefur tekið ákvörðun um að opna Mýrina næstkomandi sunnudag kl. 9:00. Leirdalurinn þarf aðeins meiri tíma þar sem óvarlegt væri að hleypa umferð á nokkrar flatir. Þær flatir sem eru tæpar eru 2, 7, 15, 16 og 18. Þessar flatir hafa fengið auka umönnun og um leið og það hlýnar í lofti má búast við að þær taki við sér. Ef það raungerist gætum við verið að horfa á miðvikudaginn í næstu viku varðandi opnun á Leirdal.
Rástímaskráning er þegar hafin á Mýrina og því er ekki seinna vænna en að dusta rykið af Golfboxinu og kynna sér nýtt útlit og virkni appsins Mitt golf. Sjá upplýsingar úr Fréttabréfi okkar 22. apríl hér.
Við minnum einnig á skráningarreglurnar sem hægt er að lesa um á þessum hlekk.
Munið að staðfesta rástíma með QR kóða sem staðsettur er á báðum hæðum Íþróttamiðstöðvarinnar.
Handhægar upplýsingar varðandi Golfbox finnast hér.
Við höldum áfram að leggja áherslu á að félagsmenn velji sér mismunandi teiga, bæði eftir getu sem og skemmtanagildi. Sjá nánar með því að smella hér.
Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum, gleðilegt golfsumar.
Staffið