
Nú styttist í að keppnistímabilið hefjist og fara fyrstu GSÍ unglingamótin fram helgina 19.-20. maí.
Um er að ræða tvær mótaraðir:
Arionbanka mótaröðin, sem er ætluð þeim unglingum sem hafa þónokkra reynslu af þátttöku í mótum, og hafa lækkað forgjöf sína töluvert.
Ath. tilmæli frá þjálfurum að leika án kaddía í flokkum 15-18 ára. Foreldrar eru þó hvattir til að fylgjast með sínum börnum sem áhorfendur.
Um að ræða a.m.k. tveggja daga mót.
Þjálfarar GKG gera þá kröfu að kylfingar í Afrekshópum/Keppnishópum pilta og stúlkna taki þátt í þessum mótum.
Fyrsta Arionbanka mótið fer fram á Akranesi (GL) 19.-20. maí og lýkur skráningu 23:59 mánudaginn 14. maí.
Ítarlegar upplýsingar og skráningu má sjá hér
Áskorendamótaröðin er ætluð þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin í þátttöku í opnum mótum og hafa ekki lágmarksforgjöf til að komast í Arionbankamótaröðina.
Þátttakendur verða að hafa staðfesta forgjöf, og mælst er til að þau hafi tekið þátt í innanfélagsmótum í sínum heimaklúbbi.
Um er að ræða eins dags mót.
GKG gerir þá kröfu að kylfingar í Keppnishópum sem hafa ekki forgjöf til að taka þátt í Arionbankamótum taki þátt í þessum mótum eða Arionbankamótunum.
Kaddíar eru leyfðir í öllum flokkum.
Fyrsta Áskorendamótið fer fram hjá Nesklúbbnum 19. maí og lýkur skráningu á miðnætti fimmtudaginn 17. maí.
Ítarlegar upplýsingar og skráningu má sjá hér
Hlynur mun fylgjast með keppendum í NK þegar Áskorendamótið fer fram, en verður síðan á Akranesi á sunnudeginum.
Við hvetjum krakkana til að velja sér mót við hæfi vonumst eftir frábærri þátttöku GKG!
Bestu kveðjur,
Úlfar, Derrick og Hlynur