Nú á haustdögum þegar dag tekur að stytta skiptum við Leirdalsvelli upp í tvo níu holu velli á virkum dögum. Frá og með miðvikudeginum 16. september verðum við því með þrjá níu holu velli fram að lokun valla seinna í haust.

Völlur 1 –  Þeir sem skrá sig til leiks á GolfBox á Leirdalinn eftir kl. 14:30 spila holur 1 til 3 og fara þaðan á 13. holu og enda á þeirri 18.

Völlur 2 – Á 4. holu í Leirdalnum höfum við sett upp boltarennu (ekki skráning á GolfBox. Þeir sem velja þann hluta spila holu 4 til og með holu 12. Boltarenna virkar þannig að ef það er ekki laust á teiginn þegar mætt er, þá setur viðkomandi boltann sinn í rennuna. Þegar boltinn er kominn fremst í rennuna er viðkomandi næstur á teig.

Völlur 3 – Gamla góða Mýrin, það er engar breytingar á henni.

ATH. þegar holl kemur niður að 13. holu sem er að spila 18 holur (holl sem hefur skráð sig á Leirdalinn fyrir kl. 14:30) þá gildir tannhjólareglan.

Þessi haust uppsetning gekk mjög vel í fyrra og við trúum og treystum að svo verði áfram. Markmiðið er að þó svo að dagurinn styttist þá geti sem flestir haldið áfram að spila golf … fram í rauðan kvöldroðann.

Við minnum kylfinga sérstaklega á að ganga extra vel um vellina okkar, enda viðkvæmari á þessum árstíma. Gera við þau boltaför sem þið sjáið, setja torfusnepla í farið, ekki slá niður í teiga í æfingasveiflu osfrv.