Landslið Íslands voru valin fyrir skemmstu og voru þrír GKG kylfingar valdir í liðin sem leika í helstu verkefnum sumarsins.

Þeir Alfreð Kristinsson og Guðjón Henning Hilmarsson munu leika með A-landsliði karla í EM landsliða í Portúgal 5.-9. júlí. Leikið verður á Victoria golfvellinum í Algarve og tekur Guðjón þátt í sínu fyrsta verkefni með A landsliðinu. 

Aron Snær Júlíusson, sem sigrað hefur á seinustu tveimur mótum drengja í Arionbankamótaröðinni, verður einn af fjórum kylfingum sem munu leika á sterku unglingamóti í Ungverjalandi, European Young Masters 21.-23. júlí, en meðal fyrrum sigurvegara er Spánverjinn Sergio Garcia.

Nánari upplýsingar um landsliðin og verkefni þeirra er að finna hér.