Nú styttist í hinn árlega tiltektardag okkar í GKG. Við ætlum meðal annars að hreinsa rusl af vellinum og nánasta umhverfi hans einnig ætlum við að gera allt fínt og fallegt í kringum og inni í Íþróttamiðstöðinni okkar svo eitthvað sé nefnt. Það er okkar von að sem flestir sjái sér fært að mæta og hjálpa við að snyrta völlinn og umhverfi hans. Þeir sem mæta geta skráð sig á rástíma í Verslun GKG og spilað fimmtudaginn 10. maí, með þeim fyrirvara um að veður geri okkur kleyft að opna á fimmtudag.

Einnig munum við bjóða upp á veitingar í lok tiltektardags hjá honum Vigni í Mulligan.

Við gerum ráð fyrir að starfa frá kl. 16:30 – 19:30

Gott ef þið skráið ykkur með því að smella hér.

Kveðja Vallarstjóri

Uppfært 8.5 kl. 06:00

Ágætu félagar.

Eftir að hafa farið vel og vandlega yfir stöðuna þá er þetta niðurstaðan. Á morgun miðvikudaginn 9.maí verður vinnudagur frá 16:30 og þeir sem taka þátt í honum geta skráð sig á rástíma laugardaginn 12. maí. 
Við munum opna Garðabæjar megin á laugardaginn, sem sagt Mýrina og 1-3,13-18. Viku síðar munum við opna allt.
Það er verið að vinna á fullu í ýmsum svæðum á vellinum og er búið að yfirsá á dúka all nokkur svæði sem við viljum að komist betur af stað áður en farið er að ganga á þeim.
Vonandi sjáum við sem flesta á vinnudaginn á morgun 9. maí kl 16:30.

Vallarstjóri