Þorgrímur Björnsson, Toggi, gerði sér ferð til St Andrews á dögunum og lauk þar með prýði prófi sem alþjóðardómari.

Dómarar með alþjóðleg réttindi (R&A referee eða alþjóðadómarar) eru allir þeir landsdómarar sem lokið hafa dómaraprófi frá R&A í samræmi við kröfur þeirra. Alþjóðadómari hefur réttindi til að dæma í öllum innlendum mótum á vegum golfklúbba og GSÍ auk alþjóðlegra móta sem kunna að vera haldin hér á landi.

Toggi er fjórði alþjóðlegi dómarinn hjá GKG, hinir eru Sæmundur Melstað, Kjartan H Bjarnason og Bergsveinn Þórarinsson og er GKG þá með þriðjung allra alþjóðlegra dómara á Íslandi.

GKG óskar Togga innilega til hamingju með réttindin!