Hlutverk mótanefndar:
- Fjallar um árlega áætlun um öll mót á golfvöllum klúbbsins sem þjónustustjóri leggur fram. Þetta gildir um innanklúbbsmót, opin mót á vegum klúbbsins, mót á vegum fyrirtækja og mót á vegum GSÍ.
- Undirbýr og fylgist með framkvæmd móta í samvinnu við þjónustustjóra og annað starfsfólk klúbbsins.
Markmið mótanefndar:
- Klúbburinn sé ávallt í fremstu röð mótshaldara innan GSÍ.
- Árlega séu haldin mót við allra hæfi á vegum klúbbsins.
- Styrkja félagsandann í klúbbnum með öflugum innanfélagsmótum.
- Mótshald fyrir fyrirtæki efli rekstur klúbbsins.
Framkvæmdastjóri starfar með mótanefnd.
Formaður mótanefndar fyrir starfsárið 2021 er Björn Steinar Stefánsson.
Í mótanefndinni er fjöldinn allur af sjálfboðaliðum sem gera mót klúbbsins eins og þau gerast best.