Árleg holukeppni golfklúbba er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, jafnt karlar sem konur og ekki síst kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið sem ræður!

Sunnudaginn 9. júní fer fram úrtökumót fyrir hina eiginlegu holukeppni. Fyrsti ráshópur verður ræstur út kl 08:00 og svo næstu ráshópar á 10 mín fresti.

Þeir 32, sem fá flesta punkta, komast áfram í sjálfa holukeppnina.

Fyrstu umferð í holukeppninni skal lokið eigi síðar en 28. júní.

Önnur umferð skal fara fram á tímabilinu 9.-23 júlí (meistaramót klúbbsins verður haldið 7.-13. júli) og síðan áfram á ca 2ja vikna fresti. Gert er ráð fyrir að úrslitaviðureignin fari fram fyrstu vikuna í september og ræðst þá hver verður holumeistari GKG árið 2013.

Ríkjandi meistari afhendir arftaka sínum sigurverðlaunin á aðalfundi GKG í lok tímabilsins.

Skráningu í mótið skal lokið fyrir kl 16:00 á föstudag 7. júní.

Keppnisgjald kr 3.000 greiðist við afhendingu skorkorta.

Keppnisgjald rennur óskipt til kaupa á trjám og runnum til gróðursetningar á vellinum í haust.

Trjáræktarnefnd skorar á félagsmenn GKG að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni sem komið var á að nýju eftir nokkurra ára hlé. Um leið styrkja félagsmenn gott málefni.