Árleg holukeppni GKG er innanfélagsmótið, þar sem hinn almenni kylfingur á góða möguleika að verða klúbbmeistari og hljóta titilinn „Holumeistari GKG“. Þetta er mótið, þar sem allir eiga jafna möguleika á sigri, ekkert síður kylfingar með háa forgjöf.

Í holukeppni með forgjöf er það bara dagsformið sem ræður!

Mótið byrjar á úrtökumóti fyrir hina eiginlegu holukeppni, en það er punktakeppni þar sem þeir  32, sem fá flesta punkta, komast áfram í sjálfa holukeppnina.

ATH. Mótsstjórn áskilur sér rétt til þess að fækka þeim sem komast áfram í holukeppnina úr 32 í 16 náist ekki full þátttaka.

Fyrstu umferð í holukeppninni skal lokið eigi síðar en 30. júní

Önnur umferð skal fara fram á tímabilinu 9.- 22. júlí og síðan áfram á ca 2ja vikna fresti. Gert er ráð fyrir að úrslitaviðureignin fari fram síðustu vikuna í ágúst og ræðst þá hver verður holumeistari GKG.

Verðlaunin eru veitt á aðalfundi klúbbsins í lok ársins þar sem fráfarandi holumeistari sem krýnir nýjan holumeistara!

Skráningu í mótið skal lokið fyrir kl 16:00 á laugardaginn 10. júní.

Keppnisgjald kr [3.500] greiðist við afhendingu skorkorta.

Tekjur af mótinu renna til trjárræktarnefndar.

 

Mótsstjóri árið 2017 er Agnar Már Jónsson