Laganemar úr Háskóla Íslands héldu í dag golfmót á Leirdalsvelli. Leikin var punktakeppni með fullri forgjöf. Kópavogsmegin léku veðurguðirnir við þátttakendur og völlurinn var í toppstandi. Flestir Þátttakendur stóðu sig með ágætum og frændurnir Árni Gestsson og Gestur Gunnarsson léku hringinn á fæstum höggum (79). Fæsta punkta hlutu þeir Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Axel Ingi Magnússon.

Röð efstu manna var eftirfarandi: 

1. sæti: Guðni Þór Magnússon 36 punktar

2-3. sæti: Davíð Ingi Magnússon 35 punktar

2-3. sæti: Kjartan Ottósson 35 punktar

Skipulagsnefnd golfmóts Culpa þakkar þátttakendum kærlega fyrir skemmtilegt mót.

Með vinsemd og virðingu,

Ágúst Bragi Björnsson, stud. jur.