Lokamót GKG kvenna 9. september sl., úrslit

:

GKG konur mættu með góða skapið á Vífilsstaðavöllinn sunnudaginn 9. september  sl. Mjög gott veður var fyrri part dagsins. Leiknar voru 18 holur á Leirdalnum. Um var að ræða punktakeppni með hæstu forgjöf.

Um kvöldið var svo lokahóf GKG kvenna, verðlaun afhent og borðaður mjög góður matur hjá Sigga. Þá komu stórsöngvarnir Magni og Pétur og skemmtu við frábærar undirtektir 33 GKG kvenna sem mættar voru í lokahófið. Skálinn gekk í bylgjum við söng og áslátt rokkaranna.

Í punktakeppninni urðu eftirfarandi úrslit:

  1. Sigríður Poulsen með 37 punkta. Hún fékk glerkertastakja, boðsmiða fyrir tvo á Leirdalinn og 7.000 kr. boltakort.
  2. Hrefna Gunnarsdóttir með 37 punkta. Hún fékk glerkertastakja, boðsmiða fyrir tvo á Leirdalinn og 5.000 kr. boltakort.
  3. Kolbrún Jónsdóttir með 36 punkta. Hún fékk glerkertastakja, boðsmiða fyrir tvo á Leirdalinn og 3.000 kr. boltakort.
  4. Sóley Gyða Jörundsdóttir með 36 punkta. Hún fékk ýmsar skemmtilegar vörur frá Hissa.is
  5. Birna B. Aspar með 35 punkta. Hún fékk ýmsar skemmtilegar vörur frá Hissa.is

Sóley Gyða Jörundsdóttir átti lengsta brautarhöggið á braut 7. Fékk hún vörur frá Hissa.is.

Sigríður Poulsen var næst holu á 4. braut (2,29m). Fékk hún konfektkassa frá INNNES og regnhlíf.

Bergþóra Sigmundsdóttir var næst holu á 11. braut (3,43m). Fékk hún konfektkassa frá INNNES og regnhlíf.

Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir var næst holu á 17. braut (11,54m). Fékk hún konfektkassa frá INNNES og regnhlíf.

Dregið var úr skorkortum og fóru allar glaðar heim með verðlaun, sumar fleiri en ein.

Kvennanefndin þakkar öllum sem hafa stutt okkur í sumar.  Þá þakkar nefndin sérstaklega starfsfólki GKG fyrir þeirra góða samstarf og Sigga og hans fólki fyrir gott og notalegt samstarf í sumar.

GKG konur fylgist með heimasíðu GKG og skráið netfangið ykkar hjá GKG svo hægt sé að senda ykkur tölvupóst um helstu viðburði GKG kvenna.

Kærar þakkir fyrir okkur.

Kvennanefndin