Í gær lauk fyrsta móti af fjórum í Mix mótaröð barna og unglinga. Veðrið lék aldeilis við keppendur, sem skemmtu sér hið besta í veðurblíðunni, en 20 keppendur luku keppni. Leikið var á gullteigum. Þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna!

Hægt er að sjá úrslitin hér fyrir neðan, en heildarúrslit er að finna hér.

Fyrir hvern punkt umfram 18 þá lækkar forgjöfin um 0,5.

Vinningar voru eftirfarandi:

1.       sæti: 1 bíómiði frá Laugarásbíó og 7 æfingafötur

2.       sæti: 1 bíómiði frá Laugarásbíó og 5 æfingafötur

3.       sæti: 1 bíómiði frá Laugarásbíó og 3 æfingafötur

Allir fengu 3 æfingafötur í þátttökuverðlaun og Floridana. Ósótt þátttökuverðlaun og vinninga er hægt að sækja í golfverslun GKG.

Næsta mót fer fram 9. júlí. Skráning í mótin fer fram á gkg.is með því að smella hér.

Úrslit í móti Mix móti nr. 1 – 25. júní

Strákar 9 ára og yngri
1 Magnús Skúli Magnússon * 17
2 Guðmundur Snær Elíasson 5
3 Baldvin Ísleifur Óskarsson 4

Strákar 10-12 ára Punktar
1 Gústav Nilsson * 18
2 Dagur Fannar Ólafsson * 14
3.-4. Róbert Leó Arnórsson * 12
3.-4. Þorbergur Úlfarsson 12

Stúlkur 10-12 ára Punktar
1 Bjarney Ósk Harðardóttir * 13
2 Birgitta Sóley Birgisdóttir 11
3 Helga María Bjarnadóttir 8

Stúlkur 9 ára og yngri Punktar
1 Ester Amíra Ægisdóttir * 8
2 Helga Grímsdóttir 2