Fyrsta mótið af níu í púttmótaröð barna og unglinga í GKG fór fram í Kórnum á laugardag. Alls mættu 40 krakkar og tóku hring. Þátttaka er ókeypis og hvetjum við alla til að mæta í næstu mót. Mótin fara fram á tveggja vikna fresti og verður því næsta mótið 26. janúar. Hér fyrir neðan má sjá árangur þeirra er náðu lægsta skorinu í hverjum flokki, en heildarúrslit má sjá hér.
12 ára og yngri stelpur
Eva María Gestsdóttir 30
12 ára og yngri strákar
Viktor Markússon 28
13 – 15 ára stúlkur
Elísabet Ágústsdóttir 28
13 – 15 ára strákar
Magnús Friðrik Helgason 27
16 – 18 ára piltar
Kristófer Orri Þórðarson 27