Valinn hópur okkar fremstu kylfinga í GKG er um þessa dagana í æfingaferð í Orlando í Flórída. Skilyrði fyrir þátttöku í þessari ferð var að vera hluti af Afrekshópi GSÍ og hafa náð menntaskólaaldri. Kylfingarnir eru að æfa og leika við frábærar aðstæður á Orlando svæðinu, og stendur æfingaferðin yfir í rúma viku. Á æfingu í gær hittu þau Charlotte Sorenstam, sem rekur golfskóla á Reunion Resort, en hún er systir einnar af goðsögnum golfsins, Anniku Sörenstam.

Á myndina vantar Ragnar Má Garðarsson, sem þurfti að yfirgefa hópinn og halda til baka í háskóla sinn í Louisiana. Á forsíðumyndinni, frá vinstri, eru: Emil Þór Ragnarsson, Aron Snær Júlíusson, Alfreð Brynjar Kristinsson, Egill Ragnar Gunnarsson, Særós Eva Óskarsdóttir, Charlotte Sörenstam, Gunnhildur Kristjánsdóttir, Kristófer Orri Þórðarson, Þórður Már Jóhannesson fararstjóri. Myndina tók Derrick Moore, afreksþjálfari GKG.