Vetraræfingar GKG hefjast í þessari viku og viljum við hvetja alla sem ætla að vera með að skrá sig í Nóra, það er gert hér: https://gkg.felog.is/

Æfingatöfluna er hægt að skoða með því að smella hér.

Ath. að krakkarnir eiga að koma með sínar kylfur á æfingar (þó ekki golfkerrurnar).

Golfskór eru bannaðir af hreinlætisástæðum og til að hlífa gervigrasinu á púttflötunum, en íþróttaskór eru æskilegir. Gera skal ráð fyrir þægilegum fatnaði þar sem æfingar eru brotnar upp með ýmisskonar hreyfingu.

Góða skemmtun í vetur!

Þjálfarar GKG

Úlfar, Hlynur, Derrick