Sigurður Arnar Garðarsson, ungur kylfingur úr GKG, gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flokk (13 ára pilta) í unglinga mótinu sem fram fór í Þýskalandi. Sigurður lék frábært golf og var í forystu frá fyrsta hring. Hann lék seinasta hringinn á 79 höggum og vann með 11 högga mun á Þjóðverjann Florian Hurlimann sem endaði annar.

Sigurður endaði mótið á 28 höggum yfir pari en strákarnir léku af hvítum teigum. Völlurinn spilaðist 6.300 metra langur en til samanburðar er heimavöllur Sigurðar, Leirdalsvöllur, 5.872 metrar af hvítum teigum.

Lokastaðan í flokki Sigurðar

Kristófer Karl Karlsson, kylfingur úr GM, lék einnig í mótinu en hann var í flokki 14-15 ára pilta. Kristófer bætti sig um eitt sæti á lokahringnum en hann lék hann á 76 höggum. Hann endaði jafn í fjórða sæti á samtals 22 höggum yfir pari. Daninn Frederik Sejr vann flokkinn en hann endaði á 11 höggum yfir pari.

Lokastaðan í flokki Kristófers

Mynd: kylfingur.is