Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs kynnir í samstarfi við Íslandsbanka.

Opna Íslandsbankamótið verður haldið á golfvelli Golfklúbbs GKG, Leirdal í Garðabæ, laugardaginn 11 júní . Ræst er út frá klukkan 08:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni karla, punktakeppni kvenna og höggleikur.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverri keppni.

Skráning hefst mánudaginn 6 júní  kl. 10. Mótsgjald er 3.000 kr. og skal greiða með korti frá Íslandsbanka. Aðeins opið fyrir viðskiptavini  Íslandsbanka.
Hámarks leikforgjöf:

Karlar: 24 Konur: 28

Verðlaun

Höggleikur, Punktakeppni karla og Punktakeppni kvenna

1. sæti: 70.000 kr. Gjafakort Íslandsbanka

2. sæti:  120.000 Vildarpunktar Icelandair

3. sæti: Bose Soundlink II mini BT hátalari

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum

Par 3 holur: 10.000 kr gjafakort frá Altis á öllum par 3 brautum.

Lengsta upphafshögg á holu 12

Ping Ferðapoki

Skorkortsúrdráttur

Gisting og morgunverður fyrir 2 á Nordica Hilton Hótel

Gjafakort  í Borgarleikhúsið

Gjafakort út að borða á VOX,

Vinningar frá Íslensk Ameríska

Miðar á tónleika Justin Bieber

Gjafakort Íslandsbanka.

Gisting og morgunverður fyrir 2 á Grand Hótel

ISB- varningur, teiggjafir

Verðlaunaafhending á móti loknu.

 

Golfklúbbur GKG í samvinnu við Íslandsbanka