Þriðja mót af sex í Egils Kristals mótaröð GKG fór fram í seinustu viku. Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Í þetta sinn tóku 45 keppendur þátt sem er flott þátttaka.  Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Næsta Kristals mót fer fram 27. júlí og fer skráning fram hér. Lokadagur skráningar er tveimur dögum fyrir mót. Viljum biðja þátttakendur að taka fram í skráningu ef þeir hyggjast leika af aftari teigum en það sem gefið er upp sjálfvirkt fyrir flokkinn.

Verðlaun í öllum flokkum voru eftirfarandi:

  1. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 10 æfingafötur
  2. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 7 æfingafötur
  3. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 5 æfingafötur

Verðlaun fyrir besta skor án forgjafar í öllum flokkum: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 10 æfingafötur

Allir keppendur fengu 3 æfingafötur og Egils Kristal í teiggjöf.

Hægt er að vitja vinninga í golfverslun GKG. Við óskum vinningshöfum til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir þátttökuna.

Meistaraflokkur karla F9 S9 Samtals
1 Emil Þór Ragnarsson * GKG 21 20 41
2 Hlynur Bergsson * GKG 19 17 36
3 Aron Snær Júlíusson * GKG 17 18 35
Besta skor í höggleik
1 Emil Þór Ragnarsson * GKG 34 35 69
Unglingamótaröð GKG – Strákar 15-18 ára F9 S9 Samtals
1 Ingi Rúnar Birgisson * GKG 20 21 41
2 Magnús Friðrik Helgason * GKG 18 17 35
3 Jóel Gauti Bjarkason * GKG 13 21 34
Besta skor í höggleik
1 Ingi Rúnar Birgisson * GKG 36 36 72
Unglingamótaröð GKG – Strákar 14 ára og yngri F9 S9 Samtals
1 Sindri Snær Kristófersson * GKG 17 19 36
2 Breki Gunnarsson Arndal * GKG 20 16 36
3 Jóhannes Sturluson * GKG 23 13 36
Besta skor í höggleik
1 Sigurður Arnar Garðarsson * GKG 39 35 74
Unglingamótaröð GKG – Stelpur 14 ára og yngri F9 S9 Samtals
1 Eva María Gestsdóttir * GKG 17 21 38
2 Bjarney Ósk Harðardóttir * GKG 14 16 30
3 Katla Björg Sigurjónsdóttir * GKG 15 13 28
Besta skor í höggleik
1 Eva María Gestsdóttir * GKG 43 40 83
Unglingamótaröð GKG – Stelpur 15-18 ára F9 S9 Samtals
1 Hafdís Ósk Hrannarsdóttir * GKG 17 16 33
2 Anna Júlía Ólafsdóttir * GKG 11 21 32
3 Íris Mjöll Jóhannesdóttir * GKG 17 13 30
Besta skor í höggleik
1 Herdís Lilja Þórðardóttir * GKG 49 47 96
Meistaraflokkur kvenna F9 S9 Samtals
1 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 22 21 43
2 Elísabet Ágústsdóttir * GKG 17 20 37
3 Ingunn Einarsdóttir * GKG 18 14 32
Besta skor í höggleik
1 Særós Eva Óskarsdóttir * GKG 36 37 73