Uppfært föstudaginn 26.8 kl. 09:00
Í næstu viku, 29. ágúst – 1. september, hefjast ný námskeið hjá Hlöðveri PGA kennara. Námskeiðin henta breiðum hópi kylfinga, allt frá háforgjafarkylfingum til lengra komna. Námskeiðin eru opin öllum, ekki einungis félagsmönnum GKG. Hópastærð er takmörkuð við 5 manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.
Mikill sveigjanleiki er hvað varðar skráningu, en það er hægt að skrá sig í eins skiptis námskeið, eða skrá sig þess vegna á öll fjögur skiptin sem eru í boði. Hvert skipti kostar kr. 2.500. Skráning er hjá ulfar@gkg.is. Lágmarks skráning í hvern tíma er 3 kylfingar. Annars fellur tími niður eða reynt verður að sameina við aðra hópa.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem eru í boði í næstu viku. Námskeiðin eru blönduð kk og kvk:
Pútt- og vippnámskeið – áhersla á grunnatriði pútta og vippa og góðar æfingar.
29. ágúst kl 17 – 18 (UPPSELT),
kl 18 – 19, (UPPSELT)
kl 19 – 20 (EITT SÆTI LAUST)
Pitch og glompunámskeið – áhersla á grunnatriði styttri innáhögga og högga úr glompum.
30. ágúst kl 17 – 18 (EITT SÆTI LAUST)
kl 18 – 19 (FJÖGUR SÆTI LAUS)
kl 19 – 20 (FIMM SÆTI LAUS).
Sveiflunámskeið – áhersla á lengri högg með millijárnum, brautartrjám og dræver.
31. ágúst kl 17 – 18 (UPPSELT)
kl 18 – 19 (TVÖ SÆTI LAUS)
kl 19 – 20 (UPPSELT)
Sveiflunámskeið – áhersla á lengri högg með millijárnum, brautartrjám og dræver.
1. september kl 17 – 18 (EITT SÆTI LAUST)
kl 18 – 19 (FJÖGUR SÆTI LAUS)
kl 19 – 20 (FIMM SÆTI LAUS)
Kennari er Hlöðver Guðnason, PGA golfkennari og GKG meðlimur (hlodverg@simnet.is / 861 1407).
Greitt skal áður en námskeið hefst.
Greiðsluupplýsingar GKG: Banki 0318 – 26 – 176, kt. 650394-2089
Skýring: v/námskeið og nafn. Senda kvittun á ulfar@gkg.is
Kennsla og æfingaboltar eru innifalnir. Kennslan fer fram á æfingasvæðum GKG, mæting ávallt við pallana við áhaldahúsið.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
ulfar@gkg.is
8629204