Nú blásum við til spennandi kvöldmóts fimmtudaginn 21. september 2017 kl 19:30 á Mýrinni og hluta Leirdalar með sjálflýsandi boltum, fjarlægðarhælum, holum og leikmönnum. Mótið er innanfélagsmót. Ræst verður út í rökkri af öllum teigum í einu og leikið inn í myrkrið. Engum verður kalt því Vignir vert og co verða á kantinum með eitthvað heitt og bragðgott í kroppinn.
Mótið er fjögurra manna betri bolti, punktamót með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir þá sem verða næstir holu í upphafshöggum á par 3 holum. Að auki verða veitt verðlaun fyrir þann sem er næstur holu í öðru höggi á 18. braut í Leirdal.
Verði tvö lið jöfn í sæti, þá gilda seinni 9 holurnar, þá 6, 3, 1. Séu liðin ennþá jöfn skal varpa hlutkesti.
Ræst verður út á öllum teigum samtímis kl. 19:30 stundvíslega. Mótið er 12 holur, það er öll Mýrin auk 1. 17. og 18. hola á Leirdal. Hringurinn er þannig að eftir 9. holu á Mýrinni er 1. hola á Leirdal leikin, þá 17. og 18. Eftir 18. holu er 1. hola á Mýrinni leikin.
Skráning fer fram á golf.is. Ekki þarf að safna saman í fjögurra manna holl heldur er nóg að skrá sig á rástíma. Þeir sem eru saman á rástíma spila saman í liði.
Verð er kr. 4.900,- innifalið í mótsgjaldi eru Hamborgari eftir mót, tveir sjálflýsandi boltar, armband og heitt kakó út á velli. Hægt er að kaupa fleiri bolta í proshop.