Kæru félagar og gleðilegt ár

Það eru enn sæti laus í námskeiðin hjá okkur sem hefjast 12. janúar, um er að ræða æfingahópa sem eru á mánudags- eða miðvikudagskvöldum eða stuttaspilsnámskeið í hádeginu á þriðjudögum eða fimmtudögum. Einnig eru við búin að hefja skráningu á námskeið sem hefjast 16. febrúar. Námskeiðin eru í 5 vikur og frekari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda á birgirleifur@gkg.is

Núna er tilvalið að standa við eitt af áramótaheitunum og skrá sig 🙂

Með kveðju

Þjálfarar GKG