About jon

This author has not yet filled in any details.
So far jon has created 62 blog entries.

Sveitakeppni unglinga 2006 – Liðskipan

Búið er að raða niður í keppnissveitir unglinga fyrir sveitakeppnina 2006 sem fer fram 18.-20. ágúst n.k. Yngri hóparnir verða á Akureyri og eldri hóparnir í Vestmannaeyjum. Fundur með foreldrum og öllum sveitum verður haldinn í golfskála GKG þann 14. ágúst kl 18:30. Smellið á "Nánar..." til þess að skoða liðskipanina.

By |04.08.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Eygló Myrra Íslandsmeistari 14-15 ára

14-15 ára flokkarnir hafa lokið leik á Akranesi. Eygló Myrra sigraði stúlknaflokkinn mjög örugglega, spilaði samtals á 254 höggum og endaði með 7 högga forystu á Berglindi Björnsdóttur úr GR sem varð í öðru sæti. Við óskum Eygló Myrru innilega til hamingju með þennan […]

By |03.08.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Úrslitin í holukeppni unglinga 2006

Nú er nýlokið Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2006. Mótið tókst í alla staði afar vel og var spilað í frábæru veðri alla dagana. Alex Freyr varð hlutskarpastur okkar GKG leikmanna og vann sinn flokk og Eygló Myrra varð í öðru sæti í sínum flokki. Úrslitin í öllum lokaleikjunum má sjá […]

By |23.07.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Frábær hringur hjá Ingunni

Fyrsti hringurinn á Íslandsmóti unglinga í holukeppni var spilaður í gær. Spilaður var höggleikur til þess að fækka keppendum niður í 16 í hverjum flokki. Ingunn Gunnarsdóttir spilaði frábært golf, varð efst í sínum flokki (16-18 ára stúlkur) á 72 höggum og fékk fyrir það […]

By |22.07.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Eygló Myrra klúbbmeistari GKG 2006

Eygló Myrra sigraði í dag meistarflokk kvenna á meistaramóti GKG og er þar með klúbbmeistari GKG 2006. Hún spilaði hringina 4 á samtals 330 höggum og vann Maríu Málfríði Guðnadóttur með 4 höggum en María vann í fyrra. Ingunn Gunnarsdóttir varð í þríðja sæti á […]

By |08.07.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Niðjamót GKG 2006 – Úrslit

Niðjamót GKG fór fram laugardaginn 1. júlí og gekk svo vel sem verða má. Tveir voru saman í liði og annar var afkomandi hins. Veður var mjög gott hægur vestan andvari, sólskin í byrjun móts en síðan skýjað að mestu. Þó hékk hann þurr allt mótið.
Leikin var punktakeppni. […]

By |01.07.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Eygló sigraði og Alex í öðru sæti

Annað mótið í KB Bankamótaröð unglinga sumarið 2006 fór fram á Strandarvelli á Hellu í gær og í dag. 27 krakkar frá GKG tóku þátt í mótinu að þessu sinni. Eygló Myrra vann í flokknum 14-15 ára stúlkur með 9 höggum (73-75) en hún vann einnig fyrsta mótið. Alex Freyr […]

By |19.06.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Jórunn vann Iceland Express mótið

Hið árlega Iceland Express mót var haldið á Vífilsstaðavelli í dag. Jórunn Pála Jónasdóttir gerði sér lítið fyrir og vann punktamótið með yfirburðum á 47 punktum. Aðalsteinn Einar Stefánsson úr GK varð í öðru sæti með 42 punkta og síðan kom Erna Valdís Ívarsdóttir með […]

By |10.06.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Eygló Myrra vann í Þorlákshöfn

Fyrsta mótið í KB Bankamótaröð unglinga sumarið 2006 fór fram á Þorlákshafnarvelli í gær og í dag. Alls tóku 27 krakkar frá GKG þátt í mótinu. Eygló Myrra stóð sig best að þessu sinni af okkar þátttakendum, spilaði báða dagana á 79 höggum […]

By |04.06.2006|Categories: Fréttir af unglingastarfi|
Go to Top