Opinn kynningardagur á morgun sunnudag kl. 13-17
Kæru félagar,
Á morgun sunnudag ætlum við að hafa opið hús hjá okkur í GKG og kynna okkar glæsilegu aðstöðu og allt sem GKG hefur upp á að bjóða.
Við vonumst til að sjá þig kæri félagsmaður, og þetta er upplagt tækifæri fyrir þig að bjóða vini/vinkonu/vandamanni með og kynna fyrir þessari […]
Reglur um val í kvennasveit GKG á Íslandsmót golfklúbba eldri kylfinga 2019
Rétt til þátttöku með æfingahópi 50+ kvenna og þátttöku í viðmiðunarmótum hafa allir kvenkylfingar sem verða 50 ára á árinu 2019 eða eru eldri og hafa 20 í forgjöf eða lægra.
Sveitakeppnin (Íslandsmót golfklúbba, eldri kylfingar, 1. deild kvenna) fer fram hjá Golfklúbbnum Öndverðarnesi dagana 16. – 18. ágúst.
Stillt hefur verið […]
Elísabet fór holu í höggi á Morgado í Portúgal!
Elísabet Böðvarsdóttir náði draumhögginu í annað sinn á dögunum þegar hún var ásamt tæplega 60 öðrum GKG-ingum í golfferð í Portúgal.
Elísabet var kominn á 11. brautina á Morgado vellinum sem er um 100 metrar að lengd. Að hennar sögn var höggið með átta járninu kannski ekki alveg smell hitt, en […]
Sigurður Kristinn fór holu í höggi í gær!
GKG kylfingar koma greinilega vel undan vetrinum og fara holu í höggi í gríð og erg, ef svo má segja.
Sigurður Kristinn Egilsson, gjaldkeri GKG, náði draumahögginu í fyrsta sinn í gær þegar hann fór holu í höggi á 13. braut á Leirdalsvellinum.
Brautin er 139 metra löng og var smá mótvindur […]
Reglur um val í karlasveit GKG á Íslandsmót golfklúbba eldri kylfinga 2019
Rétt til þátttöku hafa allir kylfingar sem verða 50 ára á árinu 2019 eða eru eldri.
Sveitakeppnin (Íslandsmót golfklúbba, eldri kylfingar, 1. deild karla) fer fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 16. – 18. ágúst.
Stillt hefur verið upp 6 mótum til valsins og eru talin upp hér neðar. Leikið er af […]
Úrslit í fyrstu þremur golfhermamótum öldunga
Í vetur hafa farið fram golfhermamót öldunga og hefur verið fínasta þátttaka.
Fyrir neðan er hægt að sjá úrslitin í fyrstu þremur mótunum, en næsta mót fer fram 4. apríl. Skráning fer fram í golfverslun GKG.
| 3. mót 1. mars | punktar | |
| 1. sæti | Ólafur B | 40 |
| 2. sæti | Magnús | 38 |
| 3. sæti | Kristján | 38 |
| Eiríkur | 35 | |
| Árni | 35 | |
| Þórólfur | 33 | |
| Svandís | 28 | |
| Hrefna | 27 | |
| Björn | 26 | |
| Óskar * | 9 | |
| Ragna * | 6 | |
| Ágústa […] |
Markús í 2. sæti í Portúgal!
Markús Marelsson, sem er aðeins 11 ára gamall og klúbbmeistari 12 ára og yngri í fyrra í GKG, náði glæsilegum árangri á Portúgölsku unglingamótaröðinni á Algarve um helgina 2.-3. mars þar sem hann keppti við efnilegustu kylfinga Portúgals.
Hann endaði í öðru sæti í höggleik og fyrsta sæti í höggleik með […]
Opnunartímar í Íþróttamiðstöð GKG og Kórnum
Viljum vekja athygli á opnunartímum okkar í æfingaaðstöðu GKG, þ.e. í golfaðstöðunni í Kórnum og Íþróttamiðstöðinni.
Íþróttamiðstöðin
Virka daga: húsið opnar 9:00 og lokar kl. 22:00
Helgar: húsið opnar kl. 9:00 og lokar kl. 18:00
Opnunartímar fyrir almenna kylfinga eru eftirfarandi:
Mán-fim: kl 9 – 14:45; 19-22:00
Fös: kl 9 – 13:45; 17-22:00
Lau: 9:00 – 18:00 (annan […]
Sigurður sigraði á FCG Florida mótinu á PGA National
Sigurður Arnar Garðarsson, afrekskylfingur úr GKG, tók þátt í FCG Florida unglingamótinu rétt fyrir áramót sem haldið var á hinu fræga golfsvæði PGA National í Palm Springs Gardens í Flórída.
Sigurður lék hringina tvo á 71 og 73 höggum, eða á parinu í heildina. Hann leiddi mótið með einu höggi eftir fyrri […]









