About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 854 blog entries.

Búið að opna fyrir skráningar á sumaræfingar GKG

Sæl og blessuð.

Nú höfum við opnað fyrir skráningar á sumaræfingar barna og unglinga, en æfingar hefjast eftir að skólum lýkur, 10. júní.  Til þess að geta tekið þátt í sumaræfingum GKG þarf að vera meðlimur í GKG og fylla út skráningarformið.

Allar upplýsingar, s.s. æfingatöflu, skipulag og markmið æfinga, og […]

Úrslit í púttmótaröð barna og unglinga

Í vetur hafa farið fram púttmót barna og unglinga í GKG annan hvern laugardag frá áramótum. Á laugardag fór fram seinasta púttmótið og mættu 29 ungir kylfingar til leiks. Mótsstjórar voru Úlfar, Derrick, Haukur Már og Emil Þór.

Í heildarkeppninni töldu 5 bestu hringirnir, og var mjótt […]

Æfingar barna og unglinga um páskana

Sæl og blessuð.

Venjulega fylgjum við skólum hvað frí varðar frá æfingum.

Við ætlum þó að hafa opnar æfingar mánudag, þriðjudag og miðvikudag (14.-16. apríl) frá kl. 17-19 í Kórnum, þar sem allir geta mætt og æft. Hægt er að mæta hvenær sem er á þessum tíma. Derrick og Haukur stjórna æfingunum.

Frí […]

Hlynur Þór lætur af störfum hjá GKG – Haukur Már nýr þjálfari

Hlynur Þór Haraldsson, barna- og unglingaþjálfari GKG, hefur ákveðið að láta af störfum sem þjálfari hjá GKG. Hlynur, sem sjálfur var afreksunglingur hjá GKG, hefur starfað hjá klúbbnum síðan 2010 sem barna- og unglingaþjálfari, við miklar vinsældir og góðan orðstír. Það er því mikill missir að honum úr GKG hópnum.

Fyrir […]

Skýrsla eftir æfingaferð 2014

Frá árinu 2007 hefur Spánn orðið fyrir valinu sem áfangastaður æfingaferðar íþróttanefndar GKG, og undanfarin tvö ár hefur förinni verið heitið til Hacienda del Alamo í Murcia héraði. Kylfingum í meistaraflokkum, afreks- og keppnishópum hefur staðið til boða að taka þátt í ferðinni, sem og aðstandendum þeirra. Alls […]

Ágúst fór holu í höggi á Hacienda!

Ágúst Arnbjörnsson, flugstjóri og meðlimur í GKG, fór holu í höggi á 5. braut á Hacienda del Alamo. Ágúst er faðir Elísabetar, 16 ára, og var í foreldrahópi keppniskylfinga GKG, sem staddir voru þar í æfingaferð síðastliðna viku.
Ágúst náði draumahögginu í fyrsta sinn á 5. brautinni, sem er 179 metra […]

By |09.04.2014|Categories: Fréttir|

Sólon fór holu í höggi!

Sólon Baldvin Baldvinsson, 14 ára kylfingur í keppnishópi GKG, fór holu í höggi fyrir nokkrum dögum í æfingaferð GKG á Spáni. Sólon náði draumahögginu á 1. holu æfingavallar Hacienda del Alamo, og notaði Sólon 7-járn af 150 metra færi. “Ég hitti boltann mjög vel og hann leit vel út allan […]

Albatros hjá Birgi Leifi!

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, gerði sér lítið fyrir og fékk albatros á 18. holunni á Hacienda del Alamo vellinum, en brautin er par 5, 533 metra löng. Birgir Leifur, sem er ásamt félögum sínum í afrekshópum GKG í æfingaferð, sló í holu af 235 metra færi, með dræver, […]

Úrslit í púttmóti nr. 7 hjá börnum og unglingum

Púttmót nr. 7 af 9 lauk s.l. laugardag í Kórnum, og voru 29 keppendur með að þessu sinni. Hægt er að sjá besta árangur í hverjum flokki hér fyrir neðan. Til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér.

Næsta mót fer fram laugardaginn 12. apríl.

Hægt er að pútta milli 11-13 og […]

Skráning hafin á nýliðanámskeið GKG

Skráning á nýliðanámskeið GKG er hafin, en þessi námskeið eru ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka […]

By |24.03.2014|Categories: Fréttir|
Go to Top