Sæl og blessuð.

Nú höfum við opnað fyrir skráningar á sumaræfingar barna og unglinga, en æfingar hefjast eftir að skólum lýkur, 10. júní.  Til þess að geta tekið þátt í sumaræfingum GKG þarf að vera meðlimur í GKG og fylla út skráningarformið.

Allar upplýsingar, s.s. æfingatöflu, skipulag og markmið æfinga, og skráningarform er að finna hér.

Vinsamlegast skráið í athugasemdadálkinn á skráningarforminu séróskir varðandi nr. hóps óskað er eftir. Einnig er gott að taka fram ef óskir eru um að vera saman í hópi með ákveðnum vin/vinkonu. Við reynum eftir fremsta megni að verða við óskum, en markmið okkar er þó að hópastærðir séu ekki meiri en 8 iðkendur per þjálfara.

Almennar æfingar eru þrisvar í viku, pútt/stutta spil/sveifluæfingar. Einnig verða opnar spilæfingar í Mýrinni, á föstudögum frá kl. 9-12. Markmið spilæfinganna er fyrst og fremst að koma þeim reynsluminni út á völl og búa til skemmtilegt og afslappað andrúmsloft, t.d. með Texas Scramble nbso online casino reviews liðakeppni. Fyrirmyndin er frá PGA Junior League í Bandaríkjunum.

Varðandi afreks/keppnishópa þá velja þjálfarar í hópa eftir viðmiðum sem hægt er að kynna sér hér.

Æfingagjald er kr. 13.000 fyrir sumartímabilið (10. júní til 25. september). Skráningarfrestur er til sunnudagsins 1. júní eða meðan laus pláss eru í hópa.

Greiðsluseðill verður sendur á kennitölu foreldris/forráðamanns um það leyti sem æfingar hefjast.

Fyrir þá sem eru ekki meðlimir í GKG þá bendum við á vikuleg Golfleikjanámskeið fyrir 5-12 ára, en þau henta afar vel fyrir þau sem eru að stíga fyrstu skrefin í íþróttinni.

P.S. Æfingar verða áfram samkvæmt vetraræfingatöflu þangað til sumaræfingar hefjast. Æfingar flytjast út á æfingasvæði/æfingavelli GKG frá og með mánudag n.k. Mæting er við pallana á æfingasvæðinu.

Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.

Bestu kveðjur fyrir hönd þjálfara GKG.

Úlfar Jónsson

Íþróttastjóri GKG