Heildarúrslit í Svalamótaröðinni 2012

Þá eru tilbúin heildarúrslit í Svalamótaröðinni sumarið 2012. Þátttakan í ár var frábær og gott að sjá hvað margir ungir og efnilegir kylfingar eru í klúbbnum. Þrír bestu hringir sumarsins hjá hverjum þátttakanda voru lagðir saman til að finna út heildarúrslitin en þau eru eftirfarandi:

By |17.08.2012|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Frábær árangur hjá GKG unglingum á seinasta stigamóti tímabilsins

Nú um helgina lauk síðasta stigamóti ársins í Arionbanka mótaröðinni, en mótið fór fram hjá Golfklúbbnum Oddi. Okkar kylfingar stóðu sig frábærlega, líkt og í öðrum mótum í sumar, en GKG hafa verið með eindæmum sigursælir í sumar, og ljóst er að framtíðin er björt.

Ragnar Már tryggði […]

Góð uppskera hjá GKG á lokahófi GSÍ

Um helgina fór fram uppskeruhátíð GSÍ í höfuðstöðvum Eimskipafélagsins þar sem kylfingar mótaraðanna fengu viðurkenningar fyrir árangur sinn á tímabilinu. Uppskera okkar fólks var frábær, sérstaklega unglinganna, en árangur þeirra hefur aldrei verið jafn glæsilegur. Með því að smella hér er hægt að skoða áranguryfirlit […]

Skráning hafin á vetraræfingar barna og unglinga í Kórnum

Seinustu æfingarnar verða í dag í GKG en með þeim lýkur sumardagskránni hjá okkur. Þetta sumar hefur gengið afar vel, met-fjöldi sem æfði hjá okkur og bætti sig í sumar, og árangur afreksunglingana okkar var einstaklega góður (sjá samantekt hér).

Við munum hittast og fagna árangrinum, veita […]

Ragnar Már sigraði á Duke of York!

Ragnar Már Garðarsson gerði sér lítið fyrir og sigraði á Duke of York mótinu, sem lauk í dag á Royal Troon vellinum í Skotlandi. Mótið er gríðarlega sterkt og virt unglingamót, en einungis landsmeistarar unglinga fá þátttökurétt í mótinu. Meðal fyrrum keppenda eru margir af fremstu atvinnumönnum […]

Ragnar Már og Emil Þór keppa á European Boys Challenge Trophy

Í gær hófst undankeppni fyrir Evrópukeppni piltalandsliða 18 ára og yngri. Níu þjóðir taka þátt og þrjár komast áfram í Evrópukeppnina á næsta ári. Sex kylfingar keppa fyrir Íslands hönd, þar af tveir úr GKG. Eftirfarandi kylfingar skipa liðið:

Birgir Björn Magnússon GK
Bjarki Pétursson GB
Emil Þór Ragnarsson GKG
Gísli […]

Sjö unglingar úr GKG keppa í Danmörku á laugardag

Sjö af okkar fremstu unglingum hefja keppni á morgun á Lalandia Open mótinu, sem fer fram á Gyttegård vellinum nálægt Billund í Danmörku. Þau sem keppa eru Gunnhildur Kristjánsdóttir, Særós Eva Óskarsdóttir, Aron Snær Júlíusson, Daníel Hilmarsson, Egill Ragnar Gunnarsson, Kristófer Orri Þórðarson og Óðinn Þór Ríkharðsson. […]

Go to Top