Öldungasveitir GKG keppa í Sveitakeppni um helgina

Sveitir eldri kylfinga GKG hefja keppni á morgun í Sveitakeppni GSÍ, og skipa eftirfarandi kylfingar sveitirnar.

Sveit eldri kylfinga kvenna sem keppa á Hellishólum 14.-16. ágúst skipa:

María Guðnadóttir
Jónína Pálsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigríður Olgeirsdóttir
Elísabet Böðvarsdóttir
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir
Áslaug Sigurðardóttir
Baldvina Guðrún Snælaugsdóttir

Liðstjóri: María Guðnadóttir

Sveit eldri kylfinga karla sem leikur á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 21.-23. […]

Staðan í Mánudagsmótaröðinni

Mánudagsmótaröðin hefur gengið vel í sumar og hefur sjö umferðum verið lokið, en bestu fjórir hringirnir telja. Stöðuna er hægt að sjá með því að smella hér.

Næsta mót fer fram á mánudag, frídag verslunarmanna, og verður hægt að fá rástíma frá 16:30-18:00 þann dag. Verðið er eingöngu 1.500 kr. og […]

María í 3. sæti í Íslandsmóti eldri kylfinga!

Gauti Grétarsson úr NK og Þórdís Geirsdóttir Keili, urðu Íslandsmeistarar eldri kylfinga en Íslandsmóti lauk í Vestmannaeyjum lauk í gær, sunnudag.

María okkar Guðnadóttir náði besta árangri GKG kylfinga í mótinu, en hún hafnaði í 3. sæti í flokki kvenna 50 ára og eldri. Vel gert hjá Maríu!

Úrslit:
Karlar 55+
1. Gauti Grétarsson […]

Meistaramót GKG

Þá er komið að móti mótanna en Meistaramót GKG er haldið í ár dagana 28. júní til 4. júlí.

Að venju er leikið í getu og aldursskiptum flokkum. Í öllum flokkum er leikinn höggleikur án forgjafar, nema í fjórða flokki kvenna en þar verður leikin punktakeppni með fullri forgjöf.

ATH, mótsstjórn áskilur […]

Námskeið í boði hjá Golfskóla GKG

Golfskóli GKG býður upp á námskeið hjá PGA menntuðum aðilum, þar sem hugað er vel að grunnatriðunum, bæði í sveiflu og stutta spili. Hópastærð er takmörkuð við sex manns þannig að hver og einn fær persónulega nálgun.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit fyrir námskeiðin sem […]

Bergur Konráðs fór holu í höggi á La Sella

Bergur Konráðsson, landskunnur Kírópraktor og meðlimur í GKG, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrstu braut græna vallarins á La Sella á Spáni. Bergur var þarna í foreldrahópi afrekskylfinga klúbbsins og náði draumahögginu á casino þessari erfiðu braut með 3-járni. Höggið var slegið af […]

Meistaraflokksráð GKG – ný afreksstefna og sóknaráætlun

Á haustmánuðum síðasta árs setti íþróttanefnd GKG á laggirnar sérstakt meistaraflokkráð til að styðja við bakið á íþróttastjóra og afreksþjálfara í málefnum meistaraflokka klúbbsins. Meistaraflokksráðið skipa Gunnar Páll Þórisson, Þórður Már Jóhannesson og Sigmundur Einar Másson.

Meistaraflokksráðið ásamt Úlfari íþróttastjóra og Derrick afreksþjálfara hafa gert stöðugreiningu og mat á því hvernig […]

Opnunartímar í Kórnum veturinn 2015

Kæru félagar.

Við viljum benda á að æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn og hvetjum við alla til að nýta sér hana og æfa vel núna og koma vel undirbúin til leiks í vor. Áður en við vitum þá verður komið grænt gras og við flykkjumst út á völl að […]

Ragnar Már og Haraldur í harðri keppni á EM einstaklinga

Haraldur Franklín Magnús GR og Ragnar Már Garðarsson GKG þurfa að eiga mjög góðan þriðja hring til að komast í gegnum 54 holu niðurskurð á Evrópumeistaramóti einstaklinga áhugamanna en annar hringurinn var leikinn á Duke’s vellinum í St. Andrews í dag.

Ragnar Már bætti sig frá því í gær þegar hann […]

Námskeið í boði fyrir félagsmenn GKG

Kvöldnámskeið Hlöðvers, PGA golfkennaranema, lukkuðust vel og munum við bjóða uppá frekari námskeið með honum strax að loknu Íslandsmóti.

Um verður að ræða þriggja skipta kvöldnámskeið, en eftirfarandi námskeið verða í boði:

Mánudaga 28.7, 11.8, 18.8, kl. 20-21
Þriðjudaga 29.7, 5.8, 12.8 kl. 20-21
Miðvikudaga 30.7, 6.7, […]

Go to Top