Val á kvennasveit GKG 2006
Þann 11. ágúst hefst sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki á Hvaleyrarvelli hjá GK þar sem verður leikið í 1. og 2. deild. Sérstök reglugerð er um sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki.
Þann 11. ágúst hefst sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki á Hvaleyrarvelli hjá GK þar sem verður leikið í 1. og 2. deild. Sérstök reglugerð er um sveitakeppni GSÍ í kvennaflokki.
Íslandsmóti unglinga í holukeppni lauk í gær. Bliðskapa veður var alla dagana og var golfið eftir því. Kylfingarnir ungu sýndu sínar bestu hliðar og voru mörg glæsileg högg sleginn í mótinu. Hér að neðan má sjá úrslit.
Mótstjórn vill þakka kylfingum fyrir drengilega keppni og góða framkomu í mótinu. Enn fremur viljum við þakka félagsmönnum GKG fyrir að sýna þolinmæði og skilning vegna lokunar á vellinum.
Frábært veður var í dag á keppendur og var golfið eftir því, mikið af fuglum og glæsilegum tilþrifum hjá okkar efnilegasta fólki. Við hvetjum kylfinga til þess að fjölmenna á morgun og sjá gott golf og eiga góða stund á Vífilsstaðavelli.
Smellið á meira til þess að sjá rástíma fyrir morgundaginn
Fyrsta umferð Íslandsmót unglinga í holukeppni er í þann mund að hefjast á Vífilsstaðavelli. Í gær var skorið niður í 16 í hverjum flokki en þeir leika holukeppni í dag. Athygli vakti að Guðni Fannar Carrico sem er búinn að vera einn af sterkustu kylfingunum í 13 ára og yngri […]
Rástímar fyrir morgundaginn 22.júlí.
Athugið að samkvæmt keppnisskilmálum að ef tveir leikmenn eru jafnir skal fara eftir seinni 9 holum ef það er jafnt þá skal varpa hlutkesti.
Dagana 21.-23.júlí fer fram Íslandsmót unglinga í holukeppni á golfvelli GKG. Alls eru um 170 keppendur skráðir til leiks en þeir leika undankeppni á föstudaginn þar sem 16 efstu í hverjum flokki komast áfram í holukeppni. Það má búast við æsispennandi keppni alla dagana […]
Hatta- og kjólamótinu hefur verið frestað um óákveðinn tíma en í staðinn verður venjulegt þriðjudagsspil 18. júlí.
25. júlí verður svo 18 holu mót GÖ-GKG og hvetjum við konur til að skrá sig og verður skráning þannig að þrjár GKG konur skrá sig saman og skilja eftir eitt autt […]
![]()
Vegna hrikalegrar veðurspár þá hefur VISA mótinu verið frestað frá morgundeginum og yfir á sunnudaginn. Rástímar allra haldast eins frá laugardeginum. Enn eru örfá laus pláss í mótið og er hægt að bóka sig með því að hringja í móttöku og rástímaskráningu GKG […]
Á morgun er fjórða mót Símamótaraðarinnar af sjö svo nú eru síðustu forvöð að taka þátt og ná fjórum mótum, en fjögur bestu mótin telja hjá þeim sem taka þátt. Við hvetjum alla til kíkja í golf og reyna að safna einhverjum punktum saman.
Til mikils er að vinna því […]
1.000.000,- milljón krónur og utanlandsferð
Opna VISA mótið verður haldið á Vífilsstaðavelli á laugardaginn kemur. Einungis VISA-kreditkorthafar geta tekið þátt í mótinu. Keppt er í punktakeppni með forgjöf og höggleik án forgjafar. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki.
Nándarverðlaun verða veitt á öllum par þrjú brautum vallarins, auk þess sem allir þátttakendur fá teiggjöf.
Hámarksforgjöf sem gefin er verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.