Opna VISA mótið um næstu helgi
1.000.000,- milljón krónur og utanlandsferð
Opna VISA mótið verður haldið á Vífilsstaðavelli á laugardaginn kemur. Einungis VISA-kreditkorthafar geta tekið þátt í mótinu. Keppt er í punktakeppni með forgjöf og höggleik án forgjafar. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki.
Nándarverðlaun verða veitt á öllum par þrjú brautum vallarins, auk þess sem allir þátttakendur fá teiggjöf.
Hámarksforgjöf sem gefin er verður 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Búið er að setja nýjar myndir frá meistaramótinu inn í myndasafnið. Endilega kíkið við. Við höldum
Við viljum minna alla velunnara unglingastarfsins á dósasöfnunina sem nú stendur yfir. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu unglinganefndar sem má skoða hér
Sigmundur EInar Másson og Eygló Myrra Óskarsdóttir eru klúbbmeistarar GKG árið 2006. Sigmundur Einar endaði hringina 4 á 283. höggum, 2. höggum á undan Ottó Sigurðssyni sem var á 285 höggum. Valgeir Tómasson og Kjartan Dór Kjartansson háðu bráðabana um 3. […]
Meistaraflokkarnir hófu leik í dag og komu mörg skor undir pari enda veður eins og best verður á kosið. Kjartan Dór Kjartansson lék best í karlaflokki en hann lauk leik á 67 höggum eða 3 undir pari. Kjartan var öryggið uppmálað á […]
Annað árið í röð eru félagsmenn GKG að setja met í þátttöku á Meistaramótinu. Núna hafa 261 félagsmaður skráð sig til leiks og hafa aldrei verið fleiri sem hafa tekið þátt. Fyrra metið var slegið í fyrra þegar 255 voru skráðir og […]