Simmi líklegastur
Skv. áliti lesenda GKG.IS er Sigmundur Einar Másson talinn líklegastur til afreka á KB Banka mótaröðinni í sumar. 34,5% lesenda telur að Sigmundur nái bestum árangri í mótaröðinni í sumar. 27,7% velja Ottó Sigurðsson, en þeir tveir bera af í áliti lesenda. Björn Halldórsson er að mati 6,2% lesenda talinn líklegur til að ná góðum árangri. Aðrir voru með innan við 5% af greiddum atkvæðum.
Með því að ýta á "Lesa meira" getur þú séð niðurstöðu könnunarinnar í heild.
Meistaramót GKG – Farandbikarar
Ágætu félagsmenn!
Sigurvegarar frá Meistaramótinu í fyrra eru vinsamlegast beðnir um að skila farandbikurum sem fyrst.
Niðjamót GKG laugardaginn 1.júlí
Niðjamót GKG fer fram laugardaginn 1.júlí n.k. Niðjamótið er styrktarmót unglinganefndar GKG og rennur allur ágóði af því í ferðasjóð unglinganna.
Þetta er punktamót þar sem spilað verður eftir greensome fyrirkomulagi en þar eru tveir og tveir saman í liði. Báðir slá á teig en […]
Völlurinn lokaður í kvöld
Kylfingar athugið
Bleiki Bikarinn – opið kvennamót fer fram kl. 20.00 í kvöld.
Og verður því völlurinn að vera auður fyrir þann tíma.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta gæti skapað kylfingum.
Bleiki Bikarinn er samstarfsverkefni milli golfklúbba á Íslandi og Krabbameinsfélags Íslands.
Mótanefnd GKG
Opna Liverpool mótið á sunnudaginn
Opna Liverpool mótið verður haldið á Vífilsstaðavelli á sunnudaginn kemur og stendur skráning yfir á www.golf.is .Opna Liverpool mótið er í samvinnu við Liverpool klúbbinn á Íslandi og Liverpool búðina í Suðurveri.
Keppt verður í punktakeppni í 2 […]
Jónsmessan á laugardaginn
Hið árlega Jónsmessumót verður haldið laugardaginn 24.júní nk. Leikið verður 4 manna Texas Scramble og deilt í samanlagða forgjöf með 10. Gríðarlegt fjör var í fyrra og verður án efa sama uppá teningnum í ár. Rástimaskráning er hafin í síma 565-7373.
Meistaramót GKG 2006
Meistaramót GKG 2006 fer fram dagana 2.-8. júlí n.k. Skráning fer fram á golf.is og lýkur föstudaginn 30.júni kl.24:00.
Smellið á "Lesa meira ..." til þess að skoða flokkaskiptingu og keppnisfyrirkomulag.
Kvennamót 30. maí s.l. úrslit
Þriðjudaginn 30. maí 2006 var 9 holu golfmót hjá konum í GKG. GKG konur létu veðrið ekki aftra sér frá því að mæta og tóku 30 konur þátt í mótinu.
1. Vilborg Jónsdóttir, 20 punkta og fékk hún golfpoka frá Hole in one
2. Birna Aspar, 19 punkta og fékk hún […]
.jpg)