Símamótaröðin í dag
Símamótaröðin heldur áfram í dag fimmtudag. Veðrið er nokkuð gott og völlurinn í fantaformi. Glæsilegir vinningar eru í boði sem aðalvinningar en einnig hlýtur vinningshafi í hverju móti fyrir sig inneign í golfbúð klúbbsins en þar verður fjölmargt á boðstólum í sumar. Við hvetjum […]
Heimsóknir á milli GKG og GO kvenna 19. og 27. júní
Um er að ræða tveggja daga vinkvennakeppni milli golfklúbbanna, 19.júní hjá GO og 27.júní hjá GKG. Sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi. Hámarksforgjöf 36. Einnig verða veittar viðurkenningar til þriggja kvenna sem verða með samanlagða flesta punkta þessa tvo daga. Smellið á "Lesa meira..." til þess að fræðast nánar um skipulagið.
Ottó endaði í 2. sæti eftir bráðabana
Ottó Sigurðsson endaði í 2. sætinu eftir bráðabana við Ólaf Má Sigurðsson úr GR eftir að báðir höfðu lokið leik eftir 3. hring á 211 höggum. Þeir léku báðir á 74 höggum í dag.
Ottó sagðist hafa verið að slá vel en púttin hafi ekki alveg ratað rétta leið. Hann var enga síður mjög bjartsýnn á framhaldið enda hafnað í top 5 á tveimur fyrstu mótum sumarsins.
Sigmundur Einar Másson tók sér verðskuldað frí þessa helgi eftir sigurinn á Opna Austuríska en kappinn er búin að vera alveg á full síðan í vetur. Við fylgjumst spennt með gangi mála hjá okkar mönnum en næsta mót í KB-Banka mótaröðinni fer fram í Leirunni eftir tæpar tvær vikur.
Ottó fékk 2 erni í röð
Ottó Sigurðsson er sem stendur í 1.-2. sæti eftir fyrsta hring á KB Banka mótaröðinni í Vestmannaeyjum. Hann lék á 69 höggum, 1 höggi undir pari.
Ottó fékk 3 skolla í röð á 1.,2. og 3. holu en náði að koma sér 1 undir par með því að fá 2 erni […]
Öldungamót
Öldunganefnd GKG efnir til móts sunnudaginn 11. júní frá kl. 9:00. Skráning fer fram á töflu í skála, hægt er að koma á staðinn eða hringja í númer 565-7373 til að skrá sig. Mótsgjald er 1.000 krónur.
Bætt við rástímum á Iceland Express
Bætt hefur verið við rástímum á Iceland Express mótið vegna aðsóknar. Glæsilegir vinningar eru í boði og góð veðurspá. Völlurinn eru í fínu ástandi og nýlega var lækkaður slátturinn á flötum. Hlökkum til að taka vel á móti kylfingum á laugardaginn kemur.
Hatta- og kjólamóti frestað
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að fresta Hatta- og kjólamóti GKG kvenna sem vera átti sunnudaginn 11. júní n.k. Þann dag eru tvö stór kvennamót sem fjöldi GKG kvenna ætlar að taka þátt í. Kvennanefnd GKG hefur því ákveðið að Hatta- og kjólamót GKG kvenna verði þriðjudaginn 11. júlí […]
Eygló Myrra sigraði
.jpg)
Fyrsta mótið í KB Bankamótaröð unglinga sumarið 2006 fór fram á Þorlákshafnarvelli í gær og í dag. Alls tóku 27 krakkar frá GKG þátt í mótinu. Eygló Myrra stóð sig best að þessu sinni af okkar þátttakendum, spilaði báða dagana á 79 […]