Rás 2 Open, fyrsta opna golfmót sumarsins hjá GKG, var haldið á Vífilstaðavelli í gær. Eins og venja er í þessu móti var keppnisfyrirkomulagið Texas Scramble og var fjöldi vinninga í boði en verðlaun voru veitt fyrir efstu fimm sætin auk þess sem þau lið sem enduðu í 10., 20., 25., 50., 60. , 75. , 100. og næst síðasta sæti fengu verðlaun. Einnig var hægt að vinna gífurlegan fjölda aukavinninga, fyrir lengstu upphafshögg og að vera næstur holu í fyrirfram ákveðnum höggafjölda. Athygli vakti að 12.hola vallarins var sú eina þar sem menn þurftu ekki að hafa áhyggjur af mælingum til verðlauna, svo mikið magn verðlauna var gefið.
Almennt var mál manna að mótið hafi tekist vel, enda lék veðrið við þátttakendur og komu mörg lið inn á góðu skori. Reyndar sáu margir sér ekki fært að mæta í verðlaunaafhendinguna og því eru mörg verðlaun enn hérna hjá okkur í klúbbhúsinu og viljum við endilega að þau verði sótt sem fyrst. Til glöggvunar fyrir þá sem ekki vita almennilega hvort þeir hafi unnið sér inn verðlaun þá fylgir hér með þessari frétt listi yfir verðlaunahafa í mótinu. Smellið á "Lesa meira" til að skoða hann.
Mótanefnd og GKG þakka fyrir frábæra þátttöku í mótinu í gær og vonast til að sjá alla aftur að ári.