Símamótaröðin hefst í vikunni

Símamótaröðin 2006
Símamótaröðin er flokkaskipt innanfélagsmót sem er á völdum fimmtudögum í sumar. Fyrsta mótið verður fimmtudaginn 1.júní nk. Keppnisfyrirkomulagið ættu flestir að vera farnir að þekkja en hér að neðan eru allar nánari upplýsingar.
Síminn er aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar í ár og verða glæsilegir símar í verðlaun fyrir efstu sætin í hverjum flokki. GKG mun einnig veita verðlaun fyrir árangur á einstökum fimmtudögum.

Æfingaferð GKG

Æfingaferð afrekshóps GKG til Þýskalands – maí 2006
 
Undanfarin ár hefur afrekshópur GKG farið í sérstaka æfingaferð utanlands. Í ár var flogið til Berlínar með Iceland Express og þaðan förinni heitið til Potsdam, sem er um klukkutíma suðvestur af miðborg Berlínar. Völlurinn sem leikið og æft var á heitir Märkisher Golf Club Potsdam. Æfingaferðin var 16.-23. maí. Þeir kylfingar sem fóru í þessa ferð voru eftirfarandi: Brynjólfur Sigmarsson, Björgvin Smári Kristjánsson, Gunnar Guðjónsson, Guðfinna Halldórsdóttir, Haukur Már Ólafsson, Jón Guðmundsson, Kjartan Dór Kjartansson, Ottó Sigurðsson, Sigmundur Einar Másson, Sigurður Ólafsson og Valgeir Tómasson, Úlfar Jónsson afreksþjálfari GKG. Enginn sérstakur farastjóri var með í för en Ottó sá að mestu um það hlutverk í ferðinni.
 

Simmi endaði í 2.-3. sæti

Nú fyrir skömmu lauk leik á fyrsta mótinu á KB Bankamótaröðinni, Ostamótinu á Akranesi. Sigmundur Einar Másson  úr GKG hafnaði í 2.-3. sæti. sem var besti árangur okkar manna. Ottó Sigurðsson hafnaði í 4.-5. sæti með góðum hring í dag en aðstæður voru heldur erfiðari í dag en í gær. […]

Afrekskylfingar í Berlín

Afrekskylfingar í GKG hafa stundað æfingar að kappi í allan vetur og fóru þeir í árlega æfingaferð dagana 16. - 23. maí til Potsdam í Þýskalandi. Æft og spilað var á Markischer Golfclub við hreint frábærar aðstöðu. Einnig léku afrekskylfingar GKG við kylfinga frá hinum fornfræga golfklúbbi Vandsee Golfclub, þar sem Arnar Már Ólafsson er golfkennari. Ferðin var einstaklega vel heppnuð og aðstæður eins og best verður á kosið.
Myndasyrpa frá ferðinni kemur á netið innan skamms

Reglufundur á föstudaginn

Föstudaginn 26. maí verður haldinn reglufundur í golfskálanum við Vífilsstaðaveg. Fundurinn hefst klukkan 18:00 og stendur í um 1-1,5 klst. Farið verður yfir allar helstu golfreglurnar auk siðareglna og umgengnisreglna.

Umsjónarmaður fundarins verður Þórður Ingason, formaður dómara og aganefndar GKG sem er landsdómaramenntaður. Efni fundarins […]

By |22.05.2006|Categories: Fréttir almennt|

Afhending Leirdalsvallar – Golfmót


Á laugardaginn kemur verður haldið Innanfélagsmót í tilefni af formlegri afhendingu Leirdalsvallarins í Kópavogi. Eftir margra ára vinnu hafa bæjarfélögin ákveðið að afhenda GKG Leirdalsvöllinn formlega til umsjónar.
Að loknu mótinu mun hefjast dagskrá á Leirdalsvellinum þar sem bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs munu undirrita viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning við klúbbinn og vegna nýs æfingahúsnæðis GKG sem til stendur að hefjast handa við. Undirritunin mun fara fram á 4. flöt Leirdalsvallar við Ásakór í Kópavogi. Þátttakendum mótsins verður boðið að taka þátt í léttum leik á 4. brautinni í Leirdal samhliða þessu. Að þessu loknu munu bæjarfélögin ásamt GKG bjóða til samsætis í skálanum okkar við Vífilsstaðaveg þar sem félagsmönnum verður boðið upp á léttar veitingar

By |18.05.2006|Categories: Fréttir almennt|

Brotist inn á svæði GKG

Aðfaranótt sunnudagsins 14.maí var brotist inní geymslur á svæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar og þaðan stolið ýmsu þar á meðal golfsettum frá klúbbfélögum. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar varðandi málið er beint á að hafa samband við GKG eða lögreglu.
Lýsing á settum sem stolið var:
 Pinseeker golfsett með rauðum sköftum, grænn […]

“Margar hendur vinna létt verk”

Um 100 sjálfboðaliðar mættu til vinnu á fimmtudaginn 11.maí í blíðskaparveðri. Mikil stemming var í hópnum og voru flest öll verk kláruð, sem búið var að skipuleggja. Meðal annars voru lagðir 2200 m2 af þökum við 15. flötina, sandglompur voru snyrtar, göngustígar rakaðir, rusl hreinsað og rakað var […]
Go to Top