Slide

Sigrar hjá Ragnari Má og Kristófer Orra um helgina.

GSÍ mótaraðirnar fóru af stað um helgina, Eimskipsmótaröðin var í Leirunni og Íslandsbankamótaröðin á Akranesi. Auk þess var Áskorendamótaröð GSÍ leikin í Setbergi á laugardag.

Ragnar Már gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrsta sinn á Eimskipsmótaröðinni, þannig að hann er heldur betur búinn að stimpla sig strax inn á […]

By |26.05.2014|Categories: Fréttir|

Hádegismatseðillinn tilbúinn hjá Sigga Kokk

Maður þarf ekki endielga að fara að spila golf til að njóta veitinganna hjá Sigga kokk. Tilvalið tækifæri til að njóta umhverfi golfvallarins og fá sér eðalhádegismat á góðu verði. Í sumar verður hægt að skoða matseðil vikunnar undir ( Um GKG -> Matseðill vikunnar )

Birgir Leifur hóf keppni í dag á Landskrona Masters PGA

Okkar maður Birgir Leifur Hafþórsson, hóf í dag keppni á Landskrona Masters sem er hluti af Nordic League Golf Tour, en mótið fer fram á Landskrona Golf Klub í Svíþjóð.

Þetta er fyrsta mótið á tímabilinu hjá Birgi Leifi, en hann kemur vel undirbúinn til leiks eftir góðar æfingar á undirbúningstímabilinu.

Við óskum […]

By |23.05.2014|Categories: Fréttir|

Opna 433.is mótið – Glæsilegir vinningar – tveir Samsung Galaxy S4 í nándarverðlaun

Upplýsingar

433.is er glæsilegt opið mót þar sem spilaður er betri bolti. Mótið er þar af leiðandi tilvalið fyrir vini, feðga, feðgin, mæðgur, mæðgin og hjón. Betri bolti virkar þannig að tveir kylfingar eru saman í liði. Báðir keppendur spila sínum bolta af teig í holu. Liðið fær punkta þess […]

Ódýrir golfbolir

Björn Leósson félagi í GKG og vallareftirlitsmaður á vellinum okkar er með golfboli til sölu á hagstæðu verði á netinu.

Hægt er að sjá nánari upplýsingar á síðunni hér:

https://bland.is/til-solu/fatnadur/karlar/flottir-golf-bolir-i-ymsum-staerdum-til-solu/2054589/

Einnig er hægt að hafa samband við Bjössa sjálfan.

Stöðvaæfingar fyrir félagsmenn GKG

Í næstu viku, frá og með 26. maí, hefjast stöðvaæfinganámskeið, sem fara fram á æfingasvæði GKG milli kl 19-20, mánudaga til fimmtudaga.

Umsjón með æfingunum hafa okkar fremstu kylfingar, þ.e. kylfingar í afrekshópi GSÍ. Fyrirkomulag æfinganna er þannig að um helmingur tímans er í sveiflu og helmingur í stutta spili. Hámarksfjöldi í hverjum […]

Leiðbeiningar vegna skráningu rástíma og skorkorta á golf.is

Kæru félagar.

Við vekjum athygli á leiðbeiningum  sem hjálpa ykkur vonandi að skrá casino rástíma og skorkort á golf.is. Þessar leiðbeiningar er að finna á heimasíðu okkar, undir flipanum Nýliðar, eða með því að smella hér.

By |19.05.2014|Categories: Fréttir|

Siggi kokkur mættur með hádegismatseðilinn

Það er tvennt sem ekki bregst á hverju voru hjá GKG, tjaldurinn mætir í hreiðurgerðina og Siggi kokkur mætir með sinn margrómaða hádegismatseðil. Í ár munum við birta vikkumatseðilinn á heimasíðunni okkar og er hægt að sjá matseðil vikunnar 19. – 23. maí með því að smella hér. … […]

Úrslit Opna N1 mótsins

Punktakeppni:

Karlar

  1. Sæti – 50 þús króna innkort (Inneignarkort hjá N1) – Hlynur Bergsson GKG, 38 p
  2. Sæti – 30 þús króna innkort (inneignarkort hjá N1) – Benedikt Árni Harðason GK, 37 p, 21 á seinni
  3. Sæti – 10 þús króna innkort (inneignarkort hjá N1) – Finnur Bjarnason GKJ, 37 p., 20 p á […]
Go to Top