Slide

Æfingasvæði GKG

Í ljósi vangaveltna um framtíð æfingasvæðis GKG má vera alveg ljóst að til þess að GKG geti haldið sinni stöðu sem einn af stærstu og fjölmennustu golfklúbbum á Íslandi þarf að koma til boðleg aðstaða sem fylgir eftir þeirri öru þróun sem á sér stað í golfheiminum. Á undanförnum árum hefur orðið mikil vakning meðal kylfinga varðandi mikilvægi æfinga og þjálfunar. Ég vil meina að þetta sé lykilþátturinn í því að gera golfið að enn ákjósanlegri íþróttagrein en nú er og bjóði upp á möguleika til enn frekari landvinninga í keppnisgolfi.

By |29.04.2006|Categories: Fréttir, Uncategorized|

Vinnu og hreinsunardagur 2011

Mánudaginn 9. maí milli klukkan 16 og 19 verður vinnu og hreinsunnardagur hjá okkur í GKG. 

Helstu verkefni dagsins verða:

  • Snyrting í kringum skála og bílaplan.
  • Hreinsa allt rusl af vellinum og nánasta umhverfis.
  • Tyrfing við æfingasvæði, 650 fermetrar.
  • Gera nýja vegkanta klára fyrir torf.
  • Bera viðarvörn á Pro Shop og sólpall ef veður leyfir.
  • Áburður á […]

GKG opnar nýjan golfvöll í Kópavogi – Leirdalsvöllur

Fátt getur komið getur í veg fyrir að nýr glæsilegur golfvöllur verði opnaður á næsta ári. Leirdalsvöllur í Kópavogi sem er viðbót við 18 holu völl GKG á Vífilsstöðum í Garðabæ. Völlurinn sem er eins og nafnið gefur til kynna í Leirdal í Kópavogi liggur frá Hnoðraholti til austur upp Leirdal meðfram Salahverfi í Kópavogi og teygir sig allt upp í Kórahverfi. Völlurinn er í stórbrotnu umhverfi skógræktarsvæðis í hlíðum Rjúpnahæðar og á mjög faglegan hátt sniðinn inn í skógræktarsvæðið og að íbúabyggð í Salahverfi.

By |29.04.2006|Categories: Fréttir, Uncategorized|

Frábær mæting á uppskeruhátíð barna- og unglingastarfsins

Frábær mæting var á uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG sem var haldin s.l. þriðjudag, en yfir 100 börn og unglingar mættu. Fyrirséð var að skálinn okkar myndi ekki rúma fjöldann og því fengum við lánaðan veislusal Breiðabliks í Smáranum fyrir hátíðina. 

Hægt er að sjá myndir frá kvöldinu með því að […]

By |23.09.2010|Categories: Fréttir almennt|

Úrslit úr 3.mótinu og lokastaðan í barnamótaröð GKG 2007

Þriðja og síðasta mótið í barnamótaröð GKG fór fram í dag. Alls spiluðu 24 krakkar að þessu sinni, 21 strákur og 3 stelpur. Sigurvegarar í barnamótaröð GKG 2997 voru þau Hinrik Þráinn Örnólfsson í strákaflokki og Gunnhildur Krisjtánsdóttir í stúlknaflokki. Til þess að skoða úrslit mótsins í dag sem og lokastöðuna í sumar smellið á "Nánar ..." hér að neðan. Lokastaðan er reiknuð út árangri í tveimur bestu mótunum. Einnig er rétt að benda á að þegar höggin eru reiknuð þá er að hámarki talið 8 högg fyrir par 3 holu, 9 á par 4 og 10 á par 5 holu.

Við óskum sigurvegurunum að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn og öllum keppendunum þökkum við kærlega fyrir þátttökuna og vonast til þess að sjá þau öll aftur á næstu mótaröð. Tímasetning vegna verðalaunaafhendingar verður tilkynnt innan skamms.

By |23.08.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|
Go to Top