Slide

Lambaskankahádegi – föstudaginn 29. mars 2019

Við höldum áfram Föstudagshádegisbragðlaukaævintýri GKG

Sumir halda því fram að lundirnar séu besta kjötið af lambinu meðan aðrir halda því fram að það sé lærið, enn aðrir hryggurinn  en flestir ef ekki allir eru sammála því að hægeldaðir lambaskankar ala Viggi toppa flest ef ekki allt.

Nú höldum við GKG-ingar áfram að […]

By |27.03.2019|Categories: Fréttir|

Purusteikarhádegi (Flæskesteg frokost) föstudaginn 22. mars 2019

Viggi vert er staðráðinn í að toppa kótilettuhádegið síðasta föstudag með purusteikahádegi.

Danirnir telja sig vera meistara purusteikurinnar en það er bara út af því að þeir vita ekki af Vigga.

Nú höldum við GKG-ingar áfram að bjóða vinum, vandamönnum og/eða vinnufélögum í föstudagshádegi GKG þann 22. mars næskomandi.

Viggi býður uppá:

  • Grísapurusteik […]
By |19.03.2019|Categories: Fréttir|

Kótilettuhádegi hjá Vigga á föstudaginn

Það er enginn … ENGINN … sem kokkar betri kótilettur en vertinn okkar hann Viggi … ekki einu sinni Imba amma … blessuð sé minning hennar.

Viggi ætlar að bjóða okkur upp á herlegheitin í hádeginu föstudaginn 15. mars.

Þetta er sjaldgæft tækfæri sem allir GKG-ingar grípa fegins hendi og bjóða með […]

By |14.03.2019|Categories: Fréttir|

Sunnudagshermamót með pútttvisti 17. mars frá kl. 17:00

Kæru félagsmenn

Enn blásum við til innanfélagsmóts Trackman golfhermunum. Í þetta sinn verða 9 holur leiknar í Harbour Town, sem notaður er í PGA mótaröðinni, í sól og 20 stiga hita og til viðbótar, fyrir þá sem vilja, verða 3×12 holur púttaðar þar sem besti hringurinn gildir.

Helstu upplýsingar:

Hermarnir: Í boði eru […]

By |11.03.2019|Categories: Fréttir|

Úrslit í fyrstu þremur golfhermamótum öldunga

Í vetur hafa farið fram golfhermamót öldunga og hefur verið fínasta þátttaka. 

Fyrir neðan er hægt að sjá úrslitin í fyrstu þremur mótunum, en næsta mót fer fram 4. apríl. Skráning fer fram í golfverslun GKG.

  3. mót 1. mars  punktar
1. sæti Ólafur B 40
2. sæti Magnús 38
3. sæti Kristján 38
  Eiríkur 35
  Árni 35
  Þórólfur 33
  Svandís 28
  Hrefna 27
  Björn 26
  Óskar * 9
  Ragna * 6
  Ágústa […]

Markús í 2. sæti í Portúgal!

Markús Marelsson, sem er aðeins 11 ára gamall og klúbbmeistari 12 ára og yngri í fyrra í GKG, náði glæsilegum árangri á  Portúgölsku unglingamótaröðinni á Algarve um helgina 2.-3. mars þar sem hann keppti við efnilegustu kylfinga Portúgals.

Hann endaði í öðru sæti í höggleik og fyrsta sæti í höggleik með […]

Kótilettu herrakvöld GKG – Miðasalan er hafin !

Kæru félagar, við höfum ákveðið að fresta Kótilettukvöldinu til 18. október. 

Kótilettuherrakvöld GKG verður haldið í Mulligan föstudaginn 15. mars, skráning er hafin.

GKG menn flækja ekki hlutina þegar þeir töfra fram sitt kósýkvöld með elegans.

Fordrykkur hefst kl. 19:00.

Viggi vert býður uppá sínar einstöku
gúrmei kótilettur með glæsibrag.

Matnum verður síðan fylgt eftir með […]

By |04.03.2019|Categories: Fréttir|
Go to Top