Slide

Samningur við sveitafélögin í höfn

Í dag var skrifað golfklúbbur GKG undir samning við sveitafélögin Garðabæ og Kópavog um byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar GKG. Um er að ræða 1.400 fermetra hús sem skiptist í almenna félagsaðstöðu og æfingaaðstöðu. Æfingaaðstaðan verður hin veglegasta og verður búin fullkomnum sveiflugreiningartækjum, golfhermum auk pútt og vippaðstöðu.

Ljóst er að nýja aðstaðan […]

Púttmótaröð GKG barna og unglinga hefst á laugardag

Púttmótaröð barna og unglinga í GKG rennur af stað á laugardag kl. 11 í Kórnum.
Mótin verða með hefðbundnu sniði líkt og undanfarin ár. Óþarfi er að skrá sig, bara mæta, og þátttaka er ókeypis.
Sjá helstu upplýsingar hér fyrir neðan.

Mótaröðin stendur yfir í fjóra mánuði, fyrsta mótið 31. janúar og seinasta […]

Meistaraflokksráð GKG – ný afreksstefna og sóknaráætlun

Á haustmánuðum síðasta árs setti íþróttanefnd GKG á laggirnar sérstakt meistaraflokkráð til að styðja við bakið á íþróttastjóra og afreksþjálfara í málefnum meistaraflokka klúbbsins. Meistaraflokksráðið skipa Gunnar Páll Þórisson, Þórður Már Jóhannesson og Sigmundur Einar Másson.

Meistaraflokksráðið ásamt Úlfari íþróttastjóra og Derrick afreksþjálfara hafa gert stöðugreiningu og mat á því hvernig […]

Opnunartímar í Kórnum veturinn 2015

Kæru félagar.

Við viljum benda á að æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn og hvetjum við alla til að nýta sér hana og æfa vel núna og koma vel undirbúin til leiks í vor. Áður en við vitum þá verður komið grænt gras og við flykkjumst út á völl að […]

Birgir Leifur íþróttamaður Kópavogs!

Birgir Leifur Hafþórsson var fyrir skömmu útnefndur íþróttakarl Kópavogs. Birgir Leifur sankar að sér viðurkenningum þessa dagana en hann var á dögum valinn kylfingur ársins í karlaflokki af GSÍ. Birgir Leifur er vel að þessum titlum kominn enda fremsti kylfingur landsins og frábær fyrirmynd. Við óskum honum innilega til hamingju […]

Vetrarnámskeið GKG

Kæru félagar og gleðilegt ár

Það eru enn sæti laus í námskeiðin hjá okkur sem hefjast 12. janúar, um er að ræða æfingahópa sem eru á mánudags- eða miðvikudagskvöldum eða stuttaspilsnámskeið í hádeginu á þriðjudögum eða fimmtudögum. Einnig eru við búin að hefja skráningu á námskeið sem hefjast 16. febrúar. Námskeiðin […]

Jólafrí frá æfingum GKG

Frí verður frá skipulögðum æfingum GKG frá og með 19. des til 4. janúar. Æfingar hefjast á ný samkvæmt óbreyttri æfingatöflu 5. janúar.

Kórinn verður lokaður 23.-26. des og frá 30.12-2.jan. Alla aðra daga er opið og viljum við hvetja ykkur til að brjóta upp jólafríið og æfa sjálf í Kórnum, […]

Æfingar barna og unglinga falla niður í dag vegna veðurs

Vonskuveður er í dag, og fer síst batnandi með deginum.

Æfingar falla því niður í dag þriðjudag í Kórnum hjá okkur.

bestu kveðjur,

þjálfarar GKG

Úr frétt frá mbl.is: “Ófært er í efri byggðum Kópa­vogs og eru starfs­menn þjón­ustumiðstöðvar bún­ir að loka við Fífu­hvamms­vegi / Sala­veg og Linda­kirkju.”

mynd: mbl.is

Vetrarnámskeið GKG 2015

Kæri félagi

Langar þig að vera tilbúinn fyrir sumarið? Þá er svarið að æfa markvisst yfir veturinn.  Við hjá GKG ætlum að bjóða félagsmönnum upp á skemmtileg námskeið sem hefjast eftir áramótin, um er að ræða stuttaspilsnámskeið í hádegi og hina vinsælu æfingahópa sem slógu í gegn síðasta vetur á kvöldin. […]

Go to Top