Slide

Bergsveinn alþjóðlegur dómari

Stjórn GSÍ samþykkti á dögunum tillögu dómaranefndar að Bergsveinn Þórarinsson fengi alþjóðleg réttindi.

Dómarar með alþjóðleg réttindi (R&A referee eða alþjóðadómarar) eru allir þeir landsdómarar sem lokið hafa dómaraprófi frá R&A í samræmi við kröfur þeirra.

Dómaranefnd skal gera tillögu til stjórnar GSÍ um þá landsdómara sem teljast hafa nægjanlega kunnáttu og […]

Úrslit í púttmóti nr. 3 hjá börnum og unglingum GKG

Þriðja móti vetrarins í púttmótaröð barna og unglinga GKG lauk s.l. laugardag, og tóku 27 krakkar þátt. Alls verða 7 mót í vetur, og telja bestu 4 mótin í heildarkeppninni. Hægt er að sjá árangur þriggja bestu í hverjum flokki hér fyrir neðan, en til að sjá úrslit allra keppenda […]

Fyrsta skóflustungan

Tveir vígalegir kranar gnæfa nú yfir gamla skálanum okkar og bíða þess að klárað sé að losa húsið frá sökklum. Þeir munu svo með sameiginlegu átaki lyfta húsinu á flutningabíl sem keyra mun skálann til Hafnarfjarðar þar sem hann mun nýtast Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarðar um ókomna tíð. Stefnt er á að […]

Tímabundin lokun skrifstofu vegna framkvæmda

Kæru félagar,

Skálinn okkar verður fjarlægður á morgun ef veður leyfir. Samhliða því verður ProShoppan og hvíta húsið fært út fyrir byggingarsvæðið. Á meðan þessum framkvæmdum stendur verður síma- og rafmangslaust auk þess sem við höfum enga aðstöðu til að taka á móti ykkur og munu starfsmenn vinna heima þessa daga. […]

Vel heppnuð golfkynning í gær í Kórnum

Vel heppnuð golfkynning fór fram í Kórnum í gær fyrir 9-11 ára. Um 20 krakkar mættu og alíka jafn margir aðstandendur. Það var því þröngt á þingi í golfaðstöðunni okkar en mjög góð stemmning og ekki var að sjá annað en að ungir sem eldri nutu sín vel. María Guðnadóttir, […]

Golfkynning hjá GKG fyrir 9-11 ára í Kórnum á laugardag

Þessi póstur er sendur á foreldra þátttakenda á barnanámskeiðum GKG s.l. sumar, fædd 2004-2006.

Við viljum bjóða börnum fæddum 2004-2006 á ókeypis námskeið í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum á laugardag n.k. Mæting er kl. 10 og stendur námskeiðið til kl. 10:50. Notast verður við SNAG golfbúnaðinn, sem og venjulegar kylfur. Námskeiðið […]

Örfá sæti laus á golfnámskeiðin sem hefjast í næstu viku í Kórnum

Góðan daginn kæru félagar

Í næstu viku eru að hefjast námskeið bæði á kvöldin og í hádeginu.  Flestir tímarninr eru fullbókaðir nú þegar en við eigum örfá sæti laus á miðvikudagskvöldum milli kl 21-22 og í fimmtudagshádeginu milli kl 12-13.

Kvöldnámskeiðin eru sett upp þannig að þetta eru æfingahópar með leiðsögn en […]

Loksins … smá pistill frá framkvæmdastjóra í ljósi tímamóta GKG

Fyrir um 10 árum síðan fóru vaskir GKG ingar af stað með það göfuga markmið að byggja aðstöðu undir starfsemina okkar. Verkefnið tók á sig ýmsar myndir og ákveðnir þættir urðu til þess að tafir urðu á. Þegar sá sem þetta skrifar var ráðinn til klúbbsins fyrir um þremur árum […]

Go to Top