Slide

Æfingar hjá GKG fyrir og eftir páska

Æfingar hjá GKG í Kórnum verða til staðar samkvæmt áætlun frá mánudegi 30.mars til og með 1. apríl. Flest önnur íþróttafélög taka frí þessa daga en við munum í staðinn taka frí frá æfingum vikuna 7.-10. apríl þegar keppnishópar ásamt þjálfurum eru í æfingaferð á Spáni.

Almennar æfingar hefjast á ný […]

Viktor Snær sigraði á innanfélagspúttmóti GKG

Í gær fór fram innanfélagspúttmót í Kórnum og mættu um 30 hressir keppendur til leiks. Leiknir voru þrír hringir og töldu tveir bestu hringirnir.

Viktor Snær Ívarsson, ungur kylfingur úr keppnishópi GKG, sigraði á frábæru skori, 20 undir á tveimur hringjum! Viktor Snær var því krýndur púttmeistari GKG 2015.

Úrslit mótsins voru […]

GKG auglýsir eftir verkstjóra fyrir golfleikjanámskeiðin í sumar

GKG leitar að verkstjóra á vikuleg golfleikjanámskeið í sumar. Fyrsta námskeið hefst 8. júní og því seinasta lýkur 31. júlí. Alls 7 vikur auk einnar viku frí þegar Meistaramót klúbbsins fer fram (29.6-3.7). Gert er ráð fyrir að verkstjóri hefji störf vikuna áður til að undirbúa námskeiðið og þjálfa leiðbeinendur. […]

Úrslit í 4. púttmótið barna og unglinga

Fjórða mót af sjö púttmótum vetrarins var haldið s.l. laugardag. Fjögur bestu mótin telja í heildarkeppninni. Alls tóku 28 krakkar þátt í mótinu og er hægt að sjá árangur þriggja bestu í hverjum flokki hér fyrir neðan. Til að sjá úrslit allra keppenda smellið hér.

Við þökkum öllum fyrir þátttökuna og […]

Innanfélagsmót GKG í Kórnum 26. mars

Kæru félagar.

Fimmtudaginn 26. mars kl. 20-22 fer fram púttmót í Kórnum og er þetta kjörið tækifæri að hittast áður en vorið brestur á og við förum út að spila.

Keppnin sjálf er einföld, leiknir eru þrír 18 holu pútthringir og telja tveir bestu hringirnir í keppninni.

Sigurvegarinn verður krýndur Púttmeistari GKG 2015 og hlýtur bikar […]

Aðalpúttflötin í Kórnum verður lokuð fimmtudagskvöldið 19. mars

Kæru félagar

Vegna púttmóts mótanefndar þá verður aðalpúttflötin lokuð í kórnum fimmtudagskvöldið 19.mars.

En hægt er að koma og slá í net og pútta á litlu flöt.

Bestu kveðjur og þökkum skilning 🙂

Starfsfólk GKG

 

Skýrsla Mýrarnefndar – fjölgun teiga – vetrarvöllur – fjölskyldutími

Mýrarnefnd hefur skilað frá sér skýrslu með tillögu að framþróun Mýrinnar. Skýrslan er mjög vel unnin og mun nýtast klúbbnum vel sem grunngagn varðandi framtíðaruppbyggingu vallarins. Fullt af góðum hugmyndum eru lagðar fram. Allar hugmyndir hafa vægi og skiptist skýrslan upp í heildamynd Mýrinnar og svo er hver og ein […]

Bráðabirgðaaðstaðan að taka á sig mynd

Nú eru smiðir að leggja síðustu hönd á félagsaðstöðuna eins og hún verður næsta sumar. Í aðstöðunni sem sést á myndinni verðum við með borð fyrir 45 einstaklinga. þegar gengið verður út um hurðina sem er vinstra megin í fjarhorniu, þá fer maður beint út í 100 fm tjald sem […]

Mótaskráin 2015 tilbúin og birt á golf.is

Kæru félagar,

þá er mótaskráin fyrir árið 2015 tilbúin og komin á golf.is. Eftirfarandi atriði er vert að minnast sérstaklega á:

  • Meistaramótið er viku fyrr á ferðinni eða 28. júní til 4. júlí.
  • Við verðum með þá nýjung að halda hjóna- og parakeppni í ár. Skemmtilegt mót sem endar að sjálfsögðu í góðu […]

GKG tekur þátt í mottumars

Við hjá GKG tökum þátt í mottumars og höfum sett okkur það markmið að ná að safna 100 þúsund krónum.

Það er lítið mál að styrkja þetta góða málefni. Einfaldlega sendið SMS í símanúmerið 908 1001 með skilaboðunum 1134 og þið styrkið liðið … og þar af leiðandi frábært málefni um […]

Go to Top